Vinnustofur (workshop)

Samstíga í leit að árangri

Áhrifarík nálgun við að virkja starfsmenn til vaxandi sóknar

Við höfum skipulagt og stýrt fjölda vinnustofa fyrir vinnustaði þar sem afmarkað viðfangsefni er tekið fyrir, rýnt og starfsmenn sameinast í leit að lausnum.  Fyrirtæki og liðsheildir standa frammi fyrir aragrúa af áskorunum í daglegu starfi sem og stefnumarkandi ákvörðunum.  Vinnustofur okkar bjóða upp á kerfisbundna, raunsanna og skemmtilega nálgun í sameiginlegri leit að niðurstöðu sem er í senn farsæl og áhrifarík.

Meðal þeirra leiða sem starfsfólk Opna háskólans í HR hefur nýtt í umbótastarfi fyrirtækja eru eftirfarandi:

Persónuleg færniFyrirtækjarækt - vinnustofa um innleiðingu gilda

Megintilgangur Fyrirtækjaræktar er tilfærsla menningar (gilda) frá hinu huglæga til hins hlutlæga. Þetta felur það í sér að menning er þýdd yfir á aðgerðir sem eflir skilning starfsfólks á henni svo það sé betur í stakk búið til að hegða sér til samræmis við hana og gera sér grein fyrir því hvenær hegðun annarra er það líka. Einnig felur aðgerðabinding í sér æfingu í að setja menningu fyrirtækisins í samhengi við markmið þess.  Um er að ræða sérstaklega áhrifaríka nálgun sem byggir á vinnu 
                                           Jack Welch hjá GE - "The GE Corporate Workout".

PMD2Farsæl innleiðing stefnu - The 4 Disciplines of Execution

Gjáin milli stefnu og framkvæmdar er brúuð með því að huga að þáttum sem varða annarsvegar fókus starfsfólks og hinsvegar samstarf þess.  Vinnustofan byggir á vinnu Jim Colins, Stephen Covey og Ram Charam um farsæla framkvæmd stefnu og markmiða ("Strategy Execution").  Nánari upplýsingar um The 4 Disciplines of Execution er að finna hér. 

StjórnarmennVinnustofa um gæði, viðhorf, verklag og árangur - The Toyota Way

Opni háskólinn hefur um árabil unnið með Kaizen aðferða Toyota við að virkja starfsfólk til aukinnar meðvitundunar um virði gæða- og umbótastarfs. Þátttakendur vinna að samsetningu leikfangajeppa í sýndarverksmiðju við mismunandi skilaboð um árangur, viðhorf og ferli.  Vinnustofan er sérstaklega áhrifamikil nálgun við kennslu á sviði gæðastjórnunar, gildavinnu, framleiðslu og reksturs.

LegoLego Serious Play

Vinna við mótun stefnu, sérstöðu og stefnumarkandi forskots fyrirtækja getur verið tímafrekt og flólkið ferli.  Með aðstoða hugmyndfræði Lego leikfangaframleiðandans einföldum við ákvarðanatöku í óvissu, skerpum á sérstöku framlagi og virði vinnustaða og fáum starfsmenn til að sammælast um setta stefnu.  Vinnustofan er í senn áhrifarík og afar skemmtileg nálgun við mikilvæga stefnumarkandi vinnu vinnustaða.

Markþjálfun 3Þjóðfundur - heim í hús

Við nýtum Þjóðfundarformið með árangursríkum hætti innan fyrirtækja, faghópa og liðsheilda til að virkja einstaklinga til árangurs heildarinnar.  Aðferðafræðin er einstök nálgun við útfærslu markmiða, gilda og árangursmælikvarða og sem leið við túlkun og yfirfærslu stefnu.  Starfsmenn Opna háskólans hafa mikla reynslu af lóðsun slíkra funda, enda þátttakendur í undirbúningi og framkvæmd Þjóðfundarins 2009 og Sóknaráætlunar þjóðfunda 2010.

XQ - The Execution Quotient

Við vörpum skýru ljósi á árangur í rekstri með því að vinna að helgun starfsmanna að vel skilgreindri framtíðarsýn fyrirtækisins.  de-brief fundir með stjórnendum eru í senn tækifæri til að koma ljós á áskoranir og tækifæri og sammælast um leiðir til úrbóta.  Nánar um xQ hér.

TMSLiðsheildin - TMS vinnustofa

Ólíkir einstaklingar skapa öflugt teymi.  Á TMS vinnustofum eru niðurstöður úr TMS (Team Management Survey) nýttar til að skerpa á mikilvægu einstöku framlagi hvers og eins.  Fjölbreytileiki er ein lykilforsenda stöðuleika og á vinnustofunni verða kenningar og aðferðir um persónulega eiginleika stjórnenda og sérfræðingar kynntar.  Vinnustofan byggir á raunhæfum verkefnum (case studies), lekjum, rýni í sjálfsmat og umræðum auk fyrirlestra.

 

  

 Smelltu hér til að senda inn fyrirspurn um vinnustofu

 

OH í SólinniNánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar: 

Sími: 599 6200

Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is

 

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica