Massachusets Institute of Technology Industry Liason Program
Aðgangur að þekkingarbrunni eins virtasta háskóla í heimi

Háskólinn í Reykjavík hefur umsjón með nýjum samstarfssamningi MIT háskólans við íslenskt atvinnulíf, sem felur í sér aðgang að víðtæku samstarfi, rannsóknum, fyrirlesurum, ráðstefnum, þekkingu og færni MIT eftir þörfum, markmiðum og óskum íslenskra fyrirtækja sem taka þátt í samstarfinu. Sérþekking er fyrst og fremst á sviði stjórnunarfræða, tölvutækni, verkfræði, eðlis- og efnafræði, orkurannsókna, og fleiri tæknigreina. Auk þess fá samstarfsaðilar allar upplýsingar um nýjungar, rannsóknir og þróunarverkefni sem verið er að vinna að, og sem tengjast þörfum íslenskra fyrirtækja.
Sérsniðnir fundir með fulltrúum MIT
Skipuleggja má fundi fyrir smærri hópa frá íslenskum fyrirtækjum. Fundirnir geta verið með leiðbeinendum, rannsóknarnemum, ráðgjöfum og vísindamönnum MIT. Á fundum sem þessum má fara yfir nýjungar í tækni eða stjórnun og kynnast áhugaverðu rannsóknarstarfi.
Málþing með fulltrúum MIT vegna stefnumótunar, stjórnunar og rannsókna
Árlega skipuleggur MIT sérstakan dagsfund eða málstofu fyrir allt að tuttugu stjórnendur frá íslenskum fyrirtækjum sem eru í samstarfi við HR. Slíkar málstofur eru sérsniðnar að þörfum íslensku fulltrúanna og nýtast t.d. til að styrkja stefnumótun, kynnast því sem er að gerast í rannsóknum og tækni, eða til að skoða nýjar aðferðir við stjórnun fyrirtækja.
Heimsóknir fulltrúa MIT til Íslands
Fulltrúar MIT skipuleggja heimsóknir til Íslands í samráði við HR. Heimsóknirnar eru ætlaðar til að kynnast aðstæðum og þörfum íslensks atvinnulífs og til að kynna ákveðnar rannsóknir eða aðferðir. Í tengslum við slíkar heimsóknir er hægt að fá sérhæfða fyrirlesara og leiðbeinendur eftir þörfum og óskum.
Samstarf og tengsl við MIT vegna rannsóknastuðnings eða ráðgjafar
Tækifæri er fyrir áhugasama íslenska aðila að styðja við rannsóknir eða fá ráðgjafa frá MIT. MIT leggur áherslu á að leysa raunveruleg viðfangsefni í rannsóknum og gera þær arðvænlegar. Ef áhugi er fyrir hendi er hægt að koma á tengslum við viðeigandi einstaklinga eða rannsóknaraðila og upplýsa íslensk fyrirtæki um tækifæri sem skapast.
MIT nemar til starfa
Íslensk fyrirtæki sem eru í samstarfi við HR hafa möguleika á að koma á tengslum við nema í MIT, ráða þá til starfa eða nýta sérþekkingu þeirra til ákveðinna verkefna/rannsókna.
Rannsóknir og lausn raunverulegra verkefna
Tengiliður MIT veitir allar upplýsingar um nýsköpun og rannsóknir innan MIT. Hægt er að biðja um skýrslur um ákveðin rannsóknarsvið eftir þörfum. Einnig er hægt að leggja fram ákveðið verkefni eða óska eftir aðstoð við að finna ákveðnar lausnir sem tengjast starfsemi, rannsóknum og þróun fyrirtækisins. MIT leggur sig fram um að tengja raunveruleg verkefna og rannsóknaraðila.
Þátttaka í MIT ráðstefnum
Fulltrúar íslenskra fyrirtækja sem eiga aðild að samstarfinu geta tekið þátt í ráðstefnum, málþingum og öðrum viðburðum sem skipulagðir eru um allan heim. Viðburðir þessir eru þátttakendum yfirleitt að kostnaðarlausu (að ferðakostnaði frátöldum).
Efni frá fyrri ráðstefnum og viðburðum
Prentað efni sem dreift hefur verið á ráðstefnum er reglulega tekið saman og gert aðgengilegt fyrir samstarfsaðila HR samkvæmt beiðni. Einnig er hægt að nálgast rafrænar útgáfur kynninga, útdrátta og samantekta frá ráðstefnum á sérstakri vefsíðu ILP samstarfsins.
Þekkingargrunnur MIT
Sérstakur þekkingargrunnur ILP samstarfsins inniheldur upplýsingar um sérfræðiþekkingu og rannsóknasvið innan MIT auk samantekta og tengla á vefsíður sem reknar eru af deildum skólans. Þar fá samstarfsaðilar HR tækifæri til að leita uppi og skoða rannsóknir sem áhugi er fyrir, tengjast rannsóknaraðilum og kynnast nýjustu tækni og rannsóknum á viðkomandi sviði.
Sérstök útgáfa fréttabréfs MIT fyrir samstarfsaðila
Sérstök útgáfa MIT Technology Insider er gefin út mánaðarlega (rafrænt). Þar koma fram fyrstu upplýsingar um nýjustu rannsóknir og þróunarverkefni innan MIT og sagt er frá markaðsáhrifum nýrrar tækni. ILP útgáfa fréttabréfsins kynnir einnig viðburði framundan og veitir yfirsýn yfir samstarf MIT við atvinnulífið. MIT Technology Insider er send mánaðarlega í tölvupósti til lykilstjórnenda hjá íslenskum samstarfsaðilum.
Áskrift að Technology Review tímaritinu
Íslenskum samstarfsaðilum stendur til boða áskrift að Technology Review, sem er tæknitímarit MIT og kemur út tíu sinnum á ári.
MIT háskólaútgáfa - bókasafn - bókaverslun
Mikið úrval efnis, bóka og skýrslna sem gefið er út af deildum MIT, verður gert aðgengilegt fyrir íslenska samstarfsaðila. Afsláttur er veittur af bókum sem gefnar eru út af MIT útgáfunni, auk þess sem íslenskir samstarfsaðilar fá fimm bókasafnsskírteini sem gilda í bókasafni MIT.
Open courseware - einstakur aðgangur
Hér er að finna ókeypis aðgang að námsefni MIT - einstök uppspretta! http://ocw.mit.edu/OcwWeb/web/home/home/index.htm
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar:
Sími: 599 6200
Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is


