Matstæki
Mælitæki til að meta árangur einstaklinga og fyrirtækja
"Þú færð það sem þú mælir!"
Við metum árangur eintaklinga, liðsheilda og vinnustaða frá nokkrum víddum. Við virðum mikilvægi þess að kortleggja stykrleika og tækifæri til umbóta, þekkja fortíðina og núverandi stöðu. Með réttum upplýsingum er hægt að setja árangursrík markmið og réttar áherslur í rekstri.
StjórnMennt Opna háskólans (RU Executive Education) býður nokkrar tegundir mælitækja sem annars vegar mæla árangur á innleiðingu stefnu og hins vegar árangur einstaklinga.
...að mæla árangur einstaklinga
360° frammistöðumat
Við styðjumst við 360°frammistöðumat Franklin Covey við mat á frammistöðu einstaklinga. Sú endurgjöf er leiðbeinandi um núverandi frammistöðu samkæmt hugmyndafræði 7 venja til árangurs og aðstoðar þátttakendur við að setha viðmið fyrir áframhaldandi vöxt.
- Nánari upplýsingar um 360°frammistöðumat Franklin Covey er að finna hér.
- PDF skjal um 360°frammistöðumat Franklin Covery er að finna hér.
TMS - Team Management System
TMS gefur þátttakendum tækifæri til að meta með heildrænum hætti eigin styrkleika og veikleika sem leiðtogar og greina mismunandi hlutverk þeirra innan hópa. TMS hefur verið notað um allan heim í opinberum og einkarekstri og reynst sérlega vel við íslenskar aðstæður.
- Nánari upplýsingar um TMS matstæki og vinnustofur er að finna hér.
... að mæla árangur vinnustaða
Stefnan í framkvæmd með XQ
Opni háskólinn vinnur í samstarfi við FranklinCovey með mörgum fremstu fyrirtækjum landsins að gera framtíðarsýn að veruleika. Með xQ matstækinu fáum við innsýn í hvernig má skapa og varðveita virði með því að snúa orðum í athafnir.
- Nánari upplýsingar um xQ matstækið er að finna hér.
- PDF skjal um xQ matstækið er að finna hér.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar:
Sími: 599 6200
Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is

