Ráðgefandi sala og sölustjórnun
Hagnýtt námskeið til nýrrar sóknar í sölu
Megin áskorun þátttakenda á vinnustofunni „Helping Clients Succeed“ er að snúa vörn í sókn og skapa ný tækifæri til árangurs. Á námskeiðinu verður þátttakendum leiðbeint með að byggja upp traust, langtímaviðskiptasambönd þar sem fjallað verður m.a. um mikilvægi þess að taka tillit til ólíkra þarfa viðskiptavina, tala af heiðarleika um hlutina, vinna skipulega og af vandvirkni og kalla eftir samstarfi þeirra sem að málinu koma í þeim tilgangi að allir hagsmunaðilar geti gengið sáttir frá samningsborðinu. Efnið er bæði tímabært og þarft fyrir íslenskt efnahagslíf þar sem rauði þráðurinn er að stuðla að langtíma árangri fyrirtækja um leið og hagsmunir viðskiptavinarins eru hafðir að leiðarljósi.
Kristian Herdal Molbech frá Franklin Covey Nordic Approach leiðir tveggja daga vinnustofu í sölustjórnun 17. og 18. nóvember 2011.
Athugið að námskeiðið er kennt á ensku.
Kynntu þér nýlega rannsókn Sales Performance Group um lykilþætti í árangursríkri sölu The Key to sustained Superior Sales Performance: Execution and Helping Clients Succeed.
For more information about the workshop click here.

