Fréttir og nýjungar
Fjölbreytileiki undirstaða stöðugleika
Rúmlega 500 námskeið eru á námskrá Opna háskólans og um 280 leiðbeinendur koma að kennslu – bæði fræðimenn HR og kennarar erlendra samstarfsháskóla auk sérfræðinga úr íslensku atvinnulífi.
Opni háskólinn í HR vinnur með mörgum stærstu fyrirtækjum landsins, útskrifar fjölda nemenda af styttri námsbrautum til ECTS eininga, flytur heim fjölda erlendra nemenda, og brúar bil inn í háskólanám í elstu frumgreinadeild landsins. Að auki vinnur Opni háskólinn með fjölda virtra háskóla og fræðasetra s.s. MIT, IESE, Franklin Covey svo nokkur séu nefnd.
Hér er að finna svipmynd af nýjungum í starfsemi okkar:

