Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ég hafði lengi velt fyrir mér frekari menntun þar sem ég hrökklaðist snemma úr námi vegna námsörðugleika sem tengdust lesblindu. Áður var ég stundum að taka einhverjar einingar í kvöld- og fjarnámi en sá fram á að það tæki mig mörg ár að klára einhvern áfanga. Þegar ég frétti af frumgreinanámi HR var ekki spurning að það hentaði mér.
Lesa meira
Frumgreinarnámið við Háskólann í Reykjavík er virkilega skemmtilegt og krefjandi, tala nú ekki um eftir 17 ára fjarveru frá námi. Þetta er frábær undirbúningur fyrir háskólanám sérstaklega hvað það varðar að læra undir álagi, því að þetta voru að jafnaði átta fög á hverri önn. Þess vegna byrjaði maður í raun á því að læra að læra og við það efldist hjá manni skipulagið og sjálfstraustið.
Lesa meira
Að mínu mati er frumgreinanámið afar góður kostur fyrir þá sem hafa ekki stúdentspróf. Námið var bæði krefjandi, hagnýtt og skemmtilegt og auk þess góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám. Einnig voru samnemendur, kennarar og starfsfólk ávallt tilbúin til að aðstoða mann.
Lesa meira
Frumgreinanámið í HR var mér gríðarlega góður undirbúningur fyrir hátækniverkfræðinámið sem ég stunda núna við Háskólann í Reykjavík. Námsefnið sem er lagt fyrir í frumgreinadeildinni er mjög víðtækt og skilar góðum grunni fyrir hvaða nám sem fólk hefur áhuga á að stunda.
Lesa meira
Þegar ég ákvað að fara í nám vildi ég markvissa kennslu í raungreinum. Frumgreinanámið uppfyllti hugmyndir mínar um góðan undirbúning fyrir verkfræðina. Námið var krefjandi, sérstaklega stærðfræðin. Samtímis var þessi tími mjög skemmtilegur, góður andi í bekknum og virkilega frábærir kennarar. Núna þegar ég er komin í háskólanám í hugbúnaðarverkfræði er ég mjög fegin að hafa svona góðan grunn í stærðfræði.
Lesa meira
"Námið í markþjálfun (Executive coaching) fór langt fram úr væntingum mínum og aldrei hef ég lært jafn mikið á jafn stuttum tíma. Opni Háskólinn í HR hefur framúrskarandi starfsfólk sem vill allt fyrir mann gera og aðstaðan frábær. Námið er krefjandi, skemmtilegt, hagnýtt og frábærlega framsett með úrvalsliði kennara. Andrúmsloftið í HR er svo einstakt, mér finnst ég alltaf koma heim þegar ég mæti í skólann, þetta var í annað skipti sem ég kem í nám hjá HR og mun ég pottþétt koma aftur."
- Steinunn Hall, stjórnendamarkþjálfi
Lesa meira
„Starfsfólk Opna háskólans á hrós skilið fyrir ljómandi góða skipulagningu og utanumhald um nám í verðbréfamiðlun. Það er sérstaklega gott að leita til ykkar og aðgangur að öllum upplýsingum og aðstoð var alltaf til staðar.“
- Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri SPF
Lesa meira
„Námið í mannauðsstjórnun jók skilning minn svo um munaði um réttindi starfsmanna og að hverju þarf að huga í því sambandi. Ég er þegar farinn að nýta mér þá þekkingu sem ég aflaði mér markvisst í starfi mínu.“
Þröstur Sigurðsson, sölu- og viðskiptastjóri Securitas
Lesa meira"7 venjur til árangurs er besta námskeið sem ég hef setið, mjög hnitmiðað og innihaldsríkt og vekur mann til umhugsunar og AÐGERÐA. Frábærir og heillandi kennarar, sem kveikja áhuga og koma efninu fullkomnlega til skila. Ég mæli heilshugar með námskeiðinu."
- Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari FL
Lesa meira
- Ásta Guðný Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdarstjóra KEA
Lesa meira
"Námið í markaðssamskiptum og almannatengslum var mjög gagnlegt og afskaplega skemmtilegt. Ég hlakkaði til allra tíma og samnemendur mínir voru frábær hópur. Ég mæli hiklaust með þessu námi við alla sem hafa áhuga á að ná lengra í markaðssamskiptum."
- Gústaf Gústafsson, markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands
Lesa meira
"Ég var mjög sátt við námið í mannauðsstjórnun og naut þess virkilega að kynnast öllu þessu frábæra fólki sem var með mér. Þetta mun nýtast mér í því starfi sem ég gegni og ég er yfir mig ánægð með að hafa drifið mig af stað í nám á ný. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með Háskólann í Reykjavík og er ákveðin í að sækja þangað meiri þekkingu í framtíðinni."
- Inga Dís Guðmundsdóttir, launafulltrúi Gámaþjónustan hf.
"Þessir 6 mánuðir sem ég stundaði nám í Tryggingaskóla HR voru mjög lærdómsríkir, oft á tíðum mjög skemmtilegir og krefjandi. Námið er mjög víðtækt og á eftir að gefa mér enn meiri styrk og kraft í mínu starfi sem og í daglegu lífi. Kennslan og gott viðmót starfsfólks er til fyrirmyndar.Ég mæli eindregið með þessu námi."
- Helgi Rúnar Jónsson, VÍS
"Ég get hiklaust mælt með námskeiðinu 7 venjur til árangurs fyrir alla þá sem vilja ná árangri í leik og starfi og jafnvægi þar á milli. Námsefnið ýtir við manni og skerpir fókus. Leiðbeinendur hafa góða þekkingu á efninu og neistann og áhugann til að miðla því áfram."
- Hildur Þórisdóttir, MP banka
Lesa meira
"Námskeiðið Framkoma og tjáning með Maríu Ellingssen var framúrskarandi og gaf mér mörg góð ráð við undirbúning á kynningum og fyrirlestrum. María er fagmaður fram í fingurgóma og ómetanlegt að fá að kynnast hennar aðferðum við að koma fram."
-Þóra Björk Eysteinsdóttir, verkefnastjóri
Lesa meira
"Alþýðusamband Íslands bauð félagsmönnum tvö sérsniðin námskeið sl. haust: Evrópumál og Ábyrgð og árangur stjórnarmanna í lífeyrissjóðum. Bæði þessi námskeið voru mjög lærdómsrík og unnin af miklum metnaði sérfræðinga innan HR. Efnistök námskeiðs, námskeiðsgögn, framsetning og allur aðbúnaður var til fyrirmyndar. Ég get eindregið mælt með Opna háskólanum og vonast til aukins samstarfs á næstu misserum."
- Eyrún Valsdóttir, Deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ
Lesa meira"365 hefur nýtt sér þau námskeið sem hafa verið í boði fyrir stjórnendur eins og t.d. mannauðstjórnun og verkefnastjórnun. Faglega hefur verið að þessu staðið, þar sem þekking og reynsla er höfð í fyrirrúmi."
- Ólafía B. Rafnsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmanna- og þjónustusvið 365
Lesa meira
"Opni háskólinn í HR er einn af uppáhaldsstöðunum mínum og ég vildi verja miklu meiri tíma þar. Sú fræðsla sem ég hef sótt þangað hefur verið góð; fróðleg, fagleg og skemmtileg. Ekki er verra hvað það er þægilegt að eiga samskipti við starfsmenn Opna Háskólans sem vilja allt fyrir mann gera og eru óþrjótandi að koma með góðar og gagnlegar tillögur um fræðslu fyrir starfsmenn jafnt sem stjórnendur."
- Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun
Lesa meira
"Það er reynsla okkar hjá VR að öll kennsla og utanumhald námskeiða Tækifæris Opna háskólans í HR séu unnin af mikilli fagmennsku og geri þá einstaklinga sem þau hafa sótt að hæfari atvinnuleitendum og betri starfskröftum."
- Jóhanna E. Vilhelmsdóttir, verkefnastjóri VR
Lesa meira"Ég mæli eindregið með spænskunámskeiðum í Opna Háskólanum þar sem þau einkennast af líflegri og frábærri kennslu, samhliða því að vera mjög lærdómsrík og fjölbreytileg. Sem byrjandi í spænsku fékk ég góðan grunn sem getur nýst bæði í leik sem og starfi. Um er að ræða skemmtileg námskeið sem gera góða tilbreytingu fyrir hversdagslífið og gekk maður undantekningalaust brosandi og sáttur út úr tíma."
- Erla Dögg Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur
Lesa meira
"Kennarinn var frábær og námið mjög skemmtilegt en jafnframt krefjandi og hagnýtt. Spænskan mín batnaði til muna á stuttum tíma. Ég get svo sannarlega mælt með þessu námskeiði fyrir alla sem vilja ná betri tökum á spænskunni."
- Helga Lilja Gunnarsdóttir, viðskiptafræðingur
Lesa meira
„Opni háskólinn gerir manni kleift að tengja saman fleiri en eitt fagsvið – á mjög praktískan hátt. Þökk sé fjölbreyttu úrvali hnitmiðaðra eininganámskeiða á háskólastigi. Fær fullt hús stiga útfrá minni reynslu!“
- Hilmar Björn Harðarson, viðskiptafræðingur og einkaþjálfari
Lesa meira
„Diplomanám Opna Háskólans í mannauðsstjórnun var krefjandi, skemmtilegt og mikil áhersla var á tengsl við atvinnulífið. Námið stóðst fyllilega væntingar mínar og mun nýtast mér bæði í starfi og einkalífi.“
- Katrín Rut Reynisdóttir, sérfræðingur á starfsmannasviði hjá Vátryggingafélagi Íslands
„Á hverju ári fjárfestir VÍS í námskeiðum og námsbrautum hjá Opna Háskólanum fyrir starfsfólk sitt. Ég er mjög ánægð með samstarfið við skólann og tel okkur uppskera hæfara og ánægðara starfsfólk að námi loknu.“
- Anna Rós Ívarsdóttir, starfsmannastjóri VÍS
„Samstarf Opna Háskólans við MIT háskólann í Boston hefur aukið tækifærin fyrir starfsmenn okkar hjá Skiptum til þekkingaröflunar með mörgum af fremstu fræðimönnum heims á sviði verkfræði og stjórnunar.“
- Ketill B. Magnússon, Framkvæmdastjóri Mannauðssviðs Skipta
„Námskeiðið Leiðtogar á vettvangi er persónulegt og krefjandi. Það hentar með vinnu, gefur innsýn í margt áhugavert og örvar mann til frekara náms. Námið á eftir að nýtast mér í starfi, félagsstörfum og daglegu lífi. Kennararnir eru frábærir og öll aðstaða til fyrirmyndar. Ég mæli hiklaust með þessu námi enda er HR mjög metnaðarfullur skóli og andrúmsloftið þannig að gaman er að nema þar.“
- Margrét Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og flugfreyja
Lesa meira
“Það var skemmtilegt ad byrja í skóla aftur og diplómanámið við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík var góður kostur fyrir hagnýtt og fræðilegt nám til að stunda samhliða starfi. Það hefur reynst góður grunnur að frekara háskólanámi á viðskiptasviði."
- Óskar Torfi Þorvaldsson, verkfræðingur Lesa meira
„Opni háskólinn hefur tekið með opnum hug í allar okkar hugmyndir og komið með framúrskarandi tillögur á stjórnendaþjálfun fyrir Securitas. Allt samstarf hefur verið metnaðarfullt og til mikillar fyrirmyndar. Við vitum af stjórnendum í öruggum höndum hjá Opna háskólanum og horfum með tilhlökkun til samstarfsins í vetur.“
- Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Securitas
"Námskeið Opna háskólans kom mér skemmtilega á óvart og stóðst fyllilega væntingar mínar og vel það!"
- Ragnheiður Halldórsdóttir, gæðastjóri Marel
"Mig langaði að læra eitthvað meira um viðskiptaheiminn og sá auglýsingu frá HR um diplómanám í alþjóðaviðskiptum. Námið hefur aukið minn skilning á alþjóðlegum viðskiptaháttum og víkkað sjónarhorn gagnvart ólíkum menningarheimum og öðru sem gott er að hafa í huga í viðskiptum. Skóli sem ég get mælt með."
- Róbert Stefánsson, Tæknifulltrúi hjá Nova
Lesa meira
"Þessi tími sem ég var hjá Opna Háskólanum var einstaklega gefandi fjölbreytt erindi og frábærir fyrirlesarar. Það sem mér fannst einstaklega skemmtilegt að upplifa það er hversu góðan anda ykkur hefur tekist að skapa sem svo sannarlega skilar sér til okkar sem sækja til ykkar. Takk fyrir mig."
- Þuríður Gunnarsdóttir, ráðgjafi Íslandsbanka
Lesa meira"Þegar ég byrjaði í Opna Háskólanum hjá ykkur þá vissi ég svo sem ekki við hverju var að búast, mætti forvitinn og fróðleiksfús með jákvætt viðhorf til verkefnisins. Eftir á að hyggja þá upplifði ég fagmennsku og flott utanumhald sem var virkilega að virka. Hlakkaði ég barnslega mikið til að mæta í hverri viku enda fagleg kennsla og flott framsetning á námsefni sem skilaði sér vel til okkar nemendanna. Því segi ég takk fyrir mig."
- Hrafn Snorrason, ráðgjafi Íslandsbanka
"Fjármálaráðgjafasetur Íslandsbanka uppfyllti allt það sem ég vildi fá út úr náminu og meira til. Við vorum í miðjum tíma þegar bankahrunið átti sér stað og þá voru þau svo fljót að sníða námið eftir þörfum okkar og ástandi þjóðfélagsins."
- Salóme Þorbjörg Guðmundsdóttir, Ráðgjafi / Einstaklingsþjónusta Íslandsbanki Selfossi
Lesa meira
„Vinnustofur og námskeið StjórnMenntar hafa nýst sérstaklega vel í starfi Deloitte. Fagleg, sértæk og árangursrík þekking fyrir okkar teymi.“
- Margrét Sanders, framkvæmdastjóri rekstrar Deloitte
"Mjög góður andi er ríkjandi og voru kennararnir áhugasamir. Nemendur sem voru lengra komnir í sínu námi voru líka duglegir að aðstoða okkur."
- Halldór Einir Smárason, nemandi frumgreinar
Lesa meira"Þegar ég hóf nám á frumgreinasviði HR þá voru liðin 25 ár frá því að ég hafði setið á skólabekk. Ég mun ævinlega minnast þess góða skipulags sem þar var á öllu starfi."
- Halldór Einir Smárason, nemandi frumgreinar
Lesa meira
"Námið í Opna háskólanum nýtist mér fullkomlega í starfi og opnaði fyrir mér nýja og spennandi sýn á lagalegu hlið trygginga. Þjónustan og andrúmsloftið er til fyrirmyndar."
- Halldóra Gröndal hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í persónutryggingum hjá TM
"Ég tel mig hafa fengið góða innsýn í allt það er viðkemur rekstri ásamt því að hafa opnað nýjar og spennandi dyr sem vekja löngun til að bæta við þekkingu mína."
- Eybjörg Einarsdóttir, nemandi í diplómanámi rekstur og stjórnun
Lesa meira
„Framboð skólans hvað snertir stjórnendaþjálfun hefur fullkomlega mætt þörfum fyrirtækja okkar. Þar er fagmennska og metnaður í fyrirrúmi.“
- Vilborg Gunnarsdóttir, starfsmannastjóri Veritas Capital
"Rekstrar- og fjármálanámið sem ég sótti á haustönn 2008 var frábært, farið er inn á alla þá þætti er tengjast rekstri miðlungsstórra fyrirtækja. Námsefni var sett upp á mjög aðgengilegan máta, kennarar skilmerkilegir og náðu svo sannarlega að hrífa okkur nemendur með sér í kennslustundum."
- Eybjörg Einarsdóttir, nemandi diplómanám
"Frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík hefur búið mig vel undir áframhaldandi nám. Öll umgjörð er til fyrirmyndar og gerðar eru kröfur til nemandans sem að undirbúa hann undir háskólanám."
- Birgir Þór, nemandi frumgreinar
"Góður vinur minn sagði eitt sinn að lykillinn að árangri og lífshamingju væri falinn í að koma sér upp safni af góðum venjum. Ég er þessu sammála og get staðfest að 7 Habits Signiature Program nýtist vel til að kalla fram nýja og betri hegðun."
- Jón Jósafat, fv. framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Odda ehf
Lesa meira"Frábært námskeið, uppbyggjandi og skemmtilegt. Covey vekur mann svo sannarlega til umhugsunar. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði fyrir alla sem vilja bæta sig í starfi og bara í lífinu sjálfu."
- Ingunn Ólafsdóttir, starfsmannastjóri Flugstoða ohf.
Lesa meira
,,Vera mín í Háskólanum í Reykjavík uppfyllti fyllilega þær væntingar og hugmyndir sem ég hafði um framúrskarandi og metnaðarfullan háskóla sem ber hag nemenda fyrir brjósti."
- Jónas R. Gunnarsson, sérfræðingur í eignastýringu hjá Virðingu Lesa meira