Auðlind einstaklinga. Auðlind atvinnulífsins.
Markmið Opna háskólans er að virkja þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði þín með faglegu og hagnýtu námi. Opni háskólinn þjónar atvinnulífinu með fjölbreyttu framboði öflugra námsleiða undir leiðsögn innlendra og erlendra sérfræðinga.
Rúmlega 500 námskeið eru á námskrá Opna háskólans og um 280 leiðbeinendur koma að kennslu - bæði fræðimenn HR og kennarar erlendra samstarfsháskóla auk sérfræðinga úr íslensku atvinnulífi.
Starfseiningar Opna háskólans vinna í dag með mörgum stærstu fyrirtækjum landsins, útskrifa fjölda nemendur með löggildingar-, starfsréttindi og diplómur, og brúa bil inn í háskólanám með einni elstu frumgreinadeild landsins. Að auki vinnur Opni háskólinn með fjölda virtra háskóla og fræðasetra s.s. MIT, IESE, FranklinCovey o.fl.
- Opni háskólinn auðgar íslenskt samfélag með miðlun og virkjun þekkingar utan hefðbundinna námslína á háskólastigi.
- Opni háskólinn er vettvangur visku og vaxtar fyrir einstaklinga, faghópa og fyrirtæki; hann er öllum opinn og opnar þér dyr að nýjum tækifærum.
- Opni háskólinn þjónar atvinnulífinu með fjölbreyttu framboði af fremstu innlendri og erlendri þekkingu hverju sinni og nýtir áhrifamiklar kennsluaðferðir með árangursríkum hætti.
Opni háskólinn samanstendur af 6 þekkingargáttum:
FagMennt: Hagnýt námskeið til að auka færni og fagþekkingu
StjórnMennt: Áhrifaríkar leiðir til að efla rekstur, rækta stjórnendur og starfsfólk
FrumgreinaMennt: Sértæk námskeið til að brúa bilið inn í háskólanám
FrumkvöðlaMennt: Viðskiptasmiðja fyrir frumkvöðla
GrunnMennt: Námskeið fyrir bráðger og námsfús börn
FjarMennt: Áhrifarík námskeið í fjarnámi - á þínum tíma á þínum forsendum

