Nöfn í byggingunni í Nauthólsvík
Salir, fundarherbergi og hópvinnurými í nýbyggingunni bera nöfn stjarna og stjörnumerkja.
Nú hafa verið tekin í notkun eftirfarandi rými (smellið á nafnið til að lesa ítarlegri lýsingu):
Antares, stjarna (+)
Antares er ein af björtustu stjörnunum á næturhimninum og er í stjörnumerkinu Sporðdrekanum.
Hún er í um 600 ljósára fjarlægð frá jörðu og þvermál hennar er um 800-falt þvermál sólar. Ef Antares væri staðsett í sólkerfi okkar lægi yfirborð hennar á milli Mars og Júpíters.
Nafn Antares er dregið úr grísku og merkir andstöðu/mótvægi við Mars (Ares). Nafnið er samsett úr anti og Ares, og er dregið af rauðum lit stjörnunnar sem minnir á lit Mars.
Betelgás, stjarna (+)
Betelgás er níunda bjartasta stjarna næturhiminsins og í stjörnumerkinu Óríon.
Hún er rauð risastjarna í um 640 ljósára fjarlægð og þvermál hennar er um þúsundfalt þvermál sólar. Líkt og hjá Antares myndi yfirborð hennar liggja á milli Mars og Júpíters ef hún væri staðsett í miðju sólkerfi okkar.
Nafn hennar endar á -gás, sem dregið er af arabíska orðinu "al-Jauza" sem vísar til staðsetningar hennar í Óríon. Hvað varðar skýringar á fullu nafni hennar eru skoðanir fræðimanna skiptar.
Ákveðnar vísbendingar eru um að hún kunni að breytast í sprengistjörnu (e. super nova) einhverntíman á næstu þúsund árum og yrði þá líklega bjartari heldur en tunglið á næturhimninum.
Bellatrix, stjarna (+)
Bellatrix er stjarna í Óríon stjörnumerkinu, einnig þekkt sem Gamma Orinionis.
Hún er þriðja bjartasta stjarna Óríons, í um 24 ljósára fjarlægð. Þvermál hennar er um sexfalt þvermál sólar.
Fönix, stjörnumerki (+)
Kassíópeia, stjörnumerki (+)
Stjörnumerkið Kassíópeia er á norðurhimninum og í því eru 5 bjartar stjörnur í lögun sem minnir á bókstafinn W. Alls eru 53 skráðar stjörnur sem tilheyra stjörnumerkinu.
Stjörnumerkið heitir eftir hinni hégómlegu drottningu Cassiopeia í grískri goðafræði.
Óríon, stjörnumerki (+)
Stjörnumerkið Óríon (Veiðimaðurinn) er á móts við miðbaug og sést því frá allri Jörðinni. Í því eru 7 bjartar stjörnur, 81 alls.
Óríon inniheldur m.a. stjörnurnar Betelgás, Rígel og Bellatrix.
Nafn stjörnumerkisins kemur frá veiðimanninum Óríón í grískri goðafræði og stjörnumerkið kemur meðal annars fyrir í Ódysseifskviðu, Iliad og fleiri lykilritum.
Pegasus, stjörnumerki (+)
Stjörnumerkið Pegasus er á norðurhimninum og inniheldur 9 eða 17 bjartar stjörnur (eftir því við hvaða skilgreiningu er miðað). Alls tilheyra því 88 skráðar stjörnur.
Stjörnumerkið heitir eftir hinum vængjaða hesti Pegasus úr grískri goðafræði.
Kastor, stjarna (+)
Kastor er önnur tveggja björtustu stjarnana í tvíburastjörnumerkinu (hin er Pollux).
Kastor er í um 50 ljósára fjarlægð og þvermál hennar er um tvöfalt þvermál sólar.
Stjarnan á sér mörg nöfn sem öll vísa í tvíbura. Castor og Pollux voru tvíburasynir gríska guðsins Seifs og hinnar jarðnesku Ledu. Í kínversku er stjarnan kennd við Yin (sbr. Yin og Yang). Arabíska nafninu Al-Ras al-Taum al-Muqadim má snara sem "höfuð fremri tvíburans".
Sjá nánar á Wikipeida
Herkúles, stjörnumerki (+)
Stjörnumerkið Herkúles er fimmta stærsta stjörnumerkið (eins og þau eru skilgreind nú á dögum). Það inniheldur 14 eða 22 bjartar stjörnur (eftir því við hvaða skilgreiningu er miðað). Alls tilheyra því 106 skráðar stjörnur.
Stjörnumerkið heitir eftir Herkúles sem var goðsagnakennd rómversk hetja og er aðlögun á hinni grísku hetju Herakles. Eldra grískt nafn stjörnumerkisins er Engonasin, eða "sá sem krýpur".
Pollux, stjarna (+)
Pollux er önnur tveggja björtustu stjarnana í tvíburastjörnumerkinu (hin er Kastor). Pollux er bjartari af þeim tveimur.
Pollux er í um 33 ljósára fjarlægð og þvermál hennar er um áttfalt þvermál sólar.
Stjarnan á sér mörg nöfn sem öll vísa í tvíbura. Pollux og Castor voru tvíburasynir Seifs og Ledu. Í kínversku er stjarnan kennd við Yang (sbr. Yin og Yang). Arabíska nafninu Al-Ras al-Tau'am al-Mu'akhar má snara sem "höfuð seinni tvíburans" .
Rígel, stjarna (+)
Rígel er bjartasta stjarnan í Óríon stjörnumerkinu. Hún er sjötta bjartasta stjarnan á næturhimni.
Rígel er blá risastjarna, um 40 þúsund sinnum bjartari en sólin. Hún er bjartasta stjarnan í okkar hluta Vetrarbrautarinnar.
Erfitt er að mæla nákvæmlega fjarlægð hennar, en hún er í milli 700 og 900 ljósára fjarlægð. Áætlað er að þvermál hennar sé um 80 sinnum meira en þvermál sólar.
Nafnið er dregið af arabísku nafni hennar sem vísar til hennar sem fótar Óríons.
Regúlus, stjarna (+)
Regúlus er bjartasta stjarnan í ljónsmerkinu (Leo) og ein af bjartari stjörnum næturhiminsins.
Í raun samanstendur Regúlus af kerfi fjögurra stjarna. Í miðju er bláhvít stjarna og um hana snýst hvít dvergstjarna. Utar eru svo tvær minni og mun daufari stjörnur.
Nafnið Regúlus er dregið úr latínu og þýðir prins eða "litli konungur".
Síríus, stjarna (+)
Síríus er bjartasta stjarna næturhiminsins. Það stafar bæði af birtustigi hennar og nálægð, en hún er í tæplega 9 ljósára fjarlægð.
Hún er í raun tvístirni, stór stjarna og hvít dvergstjarna sem snýst um hana. Þvermál stóru stjörnunnar er tæplega tvöfalt þvermál sólar og vegalengdin milli þeirra er sambærileg vegalengd frá sólu til Úranusar.
Síríus er oft kölluð "hundastjarnan" enda tilheyrir hún stjörnumerkinu Stóra hundi. Hundadagar Grikkja eru kenndir við hana og hún hafði einnig mikilvægu hlutverki að gegna í almanaki Egypta.
Nafn Síríusar kemur úr latínu sem aftur tengist gríska orðinu seirios sem merkir að glóa.
Spíka, stjarna (+)
Spíka er bjartasta stjarna meyjarmerkisins (Virgo) og telst fimmtánda bjartasta stjarna næturhiminsins.
Spíka er tvístirni, en fjarlægðin milli stjarnanna tveggja er svo lítil að mjög erfitt er að greina á milli þeirra. Spíka er í um 260 ljósára fjarlægð.
Nafn Spíka kemur úr latínu þar sem spica þýðir hveitiax. Nafnið er dregið af því að meyjan í merkinu haldi á hveitiaxi. Enska orðið spike er dregið af spica.

