... óviðjafnanlegt útsýni yfir hafið
Næst Nauthólsvík er veitingastaður sem heitir Nauthóll. Nauthóll glæsilegur veitingastaður, með veitingasölu inni og úti og afar vönduðum veislusal. Hann er staðsettur við rætur Öskjuhlíðar og skartar óviðjafnanlegu útsýni yfir hafið. Úrvalslið matreiðslu- og framreiðslumanna okkar sér um að gera viðburði ógleymanlega.
Nauthóll ber sama nafn og lítill veitingastaður sem þar stóð í nokkur ár og var vinsæll áningarstaður göngufólks og annarra sem sóttu Nauthólsvík heim. Nafnið er sótt til hóls sem er friðaður og heitir Nauthóll og er suðvestan við háskólabygginguna. Rekstur veitingastaðarins Nauthóls verður í samstarfi við HR og þjónar bæði háskólasamfélaginu og öðrum sem vilja njóta veitinga á þessum frábæra stað. Háskólinn í Reykjavík mun vinna náið með Reykjavíkurborg við að efla Nauthólsvík enn frekar sem áhugavert útivistarsvæði. Efling og uppbygging Nauthólsvíkur þjónar vel hagsmunum háskólans sem vill leggja áherslu á að háskólinn sé opinn almenningi.

