... fyrir framúrskarandi viðburði!
Við fögnum gestum hér í Nauthólsvík og erum ávallt tilbúin að finna leiðir til að hýsa þekkingarviðburði og vinnufundi.
Glæsileg aðstaða
Opni háskólinn í HR hefur milligöngu um leigu á sex stærðum af sölum og fundarherbergjum í húsnæði HR í Nauthólsvík. Sjá valkosti hér að neðan.
- Öll aðstaða er með búnaði til fyrirlestra- og fundarhalds m.a. skjávörpum, hljóðkerfi, þráðlausu neti, töflum, sýningartjöldum, flettiblaðatöflum, stýrikerfi fyrir birtu- og loftræstingu, auk fjarfundarbúnaðar sé þess óskað.
- Boðið er upp á aðstöðu til kaffiveitinga, sem og morgun-, hádegis- og kvöldverðar - á nokkrum stöðum í aðalbyggingunni. Að auki bendum við á glæsilegt veitingahús við hlið HR: Nauthól.
- Aðkoma að skólanum er afar glæsileg um Sólina; næg bílastæði eru á svæðinu, gestamóttaka, fatahengi ofl.
- Sameiginlegt rými skólans þjónar fjöldanum með bóksölu, kaffihúsum, matsölum, snyrtiaðstöðu, hraðbanka, lestraraðstöðu ofl.
- Staðsetning er einstök: miðsvæðis með þægilegum aðkomuleiðum og almenningssamgöngum.
- Hér er heillandi aðstaða til útivistar í Öskjuhlíð og Nauthólsvík, auk göngustíga, ilstrandar, siglingaklúbba ofl.
- Húsnæðið er vel merkt og auðkennt gestum í hvert sinn.
Þjónum þér af fagmennsku, krafti og gleði
Að auki tökum við að okkur verkefnastjórnun, fjölföldun á efni og milligöngu um tilboðsgerð í veitingar sé þess óskað. Við vinnum með innlendum og erlendum gestum - á íslensku, ensku, spænsku og úrvali norðurlandamála.
Heillandi valkostir
Við bjóðum fjölda áhugaverðra valkosta með húsnæði í sex flokkum. Allar stofur eru boðnar til leigu í heilan eða hálfan dag.
Svipmynd |
Flokkur |
Lýsing |
Dæmi |
|---|---|---|---|
| |
Kennslustofur 1 |
Rúma um 30 manns. Húsgögnum raðað eftir þörfum gesta. |
M217 |
|
|
Kennslustofur 2 | Rúma um 50 manns. Húsgögnum raðað eftir þörfum gesta. | M124 |
|
|
Málstofur | Rúma um 60 til 80 manns á pöllum. Stólar á hjólum - rafmagn í öllum borðum. | M209 Herkúles |
|
|
Salir | Rýma um 120 til 140 manns. Föst snúningssæti - rafmagn í öllum borðum. | Betelgás V102 |
|
|
Fundarherbergi | Rúma allt að 20 manns. Langborð, skrifstofustólar, skjávarpi, fjarfundarbúnaður, símar, flettiblaðatöflur ofl. | M306 |
|
|
Vinnuherbergi | Rúma 6 til 8 manns í "break out" vinnu tengdri kennslu eða viðburðum. | M213 |
Hafðu samband
Kíktu til okkar hingað á Menntaveg 1 - og kynntu þér valkostina.
Endilega sláðu á þráðinn til að fá nánari upplýsingar um verð og fyrirkomulag. Starfsfólk Opna háskólans er tilbúið að finna lausn sem þjónar þínum tilgangi. opnihaskolinn@opnihaskolinn.is eða síma 599-6200.
- Inn vari gestur
- er til verðar kemur
- þunnu hljóði þegir,
- eyrum hlýðir,
- en augum skoðar.
- Svo nýsist fróðra hver fyrir.
Úr Hávamálum




