Hvetjandi starfsumhverfi
HR við Nauthólsvík
Í byrjun árs 2008 hófust byggingarframkvæmdir við 36.000 fermetra nýbyggingu Háskólans í Reykjavík. Svæði háskólans upp af Nauthólsvík við rætur Öskjuhlíðar skapar tækifæri til að byggja upp þekkingar- og nýsköpunarsamfélag á heimsmælikvarða. Svæðið nýtur góðs af fögru umhverfi Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur, nálægðar við miðborg Reykjavíkur, stúdentaíbúðir og eina bestu íþróttaaðstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess eru mörg helstu fyrirtæki og stofnanir landsins í nágrenninu sem auðveldar sterk tengsl við atvinnulífið.
Leiðarljós við hönnun byggingarinnar
Leiðarljósið við hönnun háskólabyggingarinnar tengist stefnumörkun HR um opinn, alþjóðlegan háskóla þar sem eftirfarandi áhersluatriði eru í fyrirrúmi:
- Sveigjanleiki í hönnun og rekstri
- Opin háskólabygging með auðveld samskipti milli allra háskólasviða
- Hvetjandi starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á þægindi, gæði og margbreytileika
- Stúdentamiðuð bygging þar sem vinnuaðstaða nemenda og þjónusta er í fremstu röð
- Byggingin falli vel að umhverfinu og styrki útivistarsvæði Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar
Á þessu 20 hektara háskólasvæði sem Reykjavíkurborg úthlutaði HR er viðbótarrými fyrir nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, rannsóknarstofnanir, sprotafyrirtæki eða aðra starfsemi sem á samleið með því þekkingarsamfélagi sem HR vill byggja upp á svæðinu.
Hönnuðir og ráðgjafar í fremstu röð
Henning Larsen Architects í Danmörku og Arkís á Íslandi eru arkitektar háskólabyggingarinnar. Mannvit annast verkfræðilega hönnun í samstarfi við Verkís og Cowi í Danmörku. Landslagsarkitektar eru Landmótun. Efla verkfræðistofa hefur verið sérstakur ráðgjafi HR í þessu verkefni og er jafnframt með eftirlit með byggingarframkvæmdum. Byggingin er í eigu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar sem leigir hana með kauprétti á fimm ára fresti til HR til næstu 50 ára. Verkefnastjórn fyrir hönd Fasteignar við framkvæmd hönnunar og samskipta við HR er í höndum Þróunar og ráðgjafar ehf.

