Háskólasvæðið

mynd6Á 20 hektara háskólasvæði HR er háskólabyggingin syðst á svæðinu, um 36.000 fermetrar að stærð. Hægt er að stækka hana um 20.000  fermetra.

 

Gatan niður að HR liggur frá hringtorgi sem mun koma við Loftleiðahótelið. Að þessu hringtorgi mun liggja Flugvallarvegur og síðan ný gata Hlíðarbraut frá Hringbraut. Göngu- og hjólreiðastígur liggur meðfram Öskjuhlíð og niður að háskólanum og Nauthólsvík. Í sveig í kringum háskólabygginguna liggur gata sem kölluð verður Fróðasveigur. Vestan við Fróðasveig er svæði fyrir rannsóknarstofnanir og önnur fyrirtæki í þekkingarstarfsemi, samtals um 20.000 fermetrar. Þar fyrir vestan, nær flugbrautinni, er óskipulagt svæði í eigu HR sem verður skipulagt síðar.

Nyrst á háskólasvæði HR er gert ráð fyrir 200-300 íbúðum fyrir stúdenta, auk leikskóla. Á svæðinu á milli íbúðanna og háskólans er gert ráð fyrir sameiginlegum bílastæðum er þjóna öllu háskólasvæðinu.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica