Staðurinn

Til staðar fyrir þig!

Opni háskólinn er fluttur í glæsilegt nýtt húsnæði Háskólans í Reykjavík við Menntaveg 1, 101 Reykjavík.  

nybygging_utanVið erum afar stolt af því að geta tekið á móti nemendum Opna háskólans í HR í einstöku nýju húsnæði skólans í Nauthólsvík.  Við erum staðsett á annari hæð í Mars og Venus.  Rýmið býður upp á frábært tækifæri til að skapa og miðla þekkingu, nemendur hafa aðgang að þægilegum vinnustofum, vel búnum kennslustofum, þráðlausu neti, tölvum, fundaraðstöðu, þekkingartorgi með kaffiveitingum, glæsilegu bókasafni og allri þekkingu og þjónustu HR. 

Svæði háskólans upp af Nauthólsvík við rætur Öskjuhlíðar skapar tækifæri til að byggja upp þekkingar- og nýsköpunarsamfélag á heimsmælikvarða. Svæðið nýtur góðs af fögru umhverfi Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur, nálægðar við miðborg Reykjavíkur, stúdentaíbúðir og eina bestu íþróttaaðstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess eru mörg helstu fyrirtæki og stofnanir landsins í nágrenninu sem auðveldar sterk tengsl við atvinnulífið.í Vatnsmýri.

 

Nýtt húsnæði HR í VatnsmýriÁ 20 hektara háskólasvæði HR í Vatnsmýrinni er háskólabyggingin syðst á svæðinu, um 36.000 fermetrar að stærð. Hægt er að stækka hana um 20.000  fermetra. Gatan niður að HR liggur frá hringtorgi sem mun koma við Loftleiðahótelið. Að þessu hringtorgi mun liggja Flugvallarvegur og síðan ný gata Hlíðarbraut frá Hringbraut. Göngu- og hjólreiðastígur liggur meðfram Öskjuhlíð og niður að háskólanum og Nauthólsvík. Í sveig í kringum háskólabygginguna liggur gata sem kölluð verður Fróðasveigur. Vestan við Fróðasveig er svæði fyrir rannsóknarstofnanir og önnur fyrirtæki í þekkingarstarfsemi, samtals um 20.000 fermetrar. Þar fyrir vestan, nær flugbrautinni, er óskipulagt svæði í eigu HR sem verður skipulagt síðar.

Nyrst á háskólasvæði HR er gert ráð fyrir 200-300 íbúðum fyrir stúdenta, auk leikskóla. Á svæðinu á milli íbúðanna og háskólans er gert ráð fyrir sameiginlegum bílastæðum er þjóna öllu háskólasvæðinu. Næst Nauthólsvík er veitingastaður sem heitir Nauthóll.  Efling og uppbygging Nauthólsvíkur þjónar vel hagsmunum háskólans sem vill leggja áherslu á að háskólinn sé opinn almenningi.

 

Hafðu samband - okkur finnst gaman að heyra frá þér!

http://www.opnihaskolinn.is/

opnihaskolinn@opnihaskolinn.is

Sími: 599 6248










Þetta vefsvæði byggir á Eplica