Öll opin námskeið

« feb 2012 »
SMÞMFFL
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Öll opin námskeið

28.02.2012 Fagmennt

Samningatækni - framhald

Framhaldsnámskeið í samningatækni þar sem lögð er sérstök áhersla á það stig samningamennsku þar sem samingsaðilar vinna saman að lausnum sem eiga að skila sameiginlegum ávinningi.  Í því ljósi er meðal annars fjallað um faglega ákvarðanatöku.  Ennfremur er farið yfir traust og siðferði í samningamennsku.  Tekin eru fyrir fleiri atriði eins og:  Er skynsamlegt að setja fram fyrsta boð eða bíða eftir að sá sem samið er við geri það? Að lokum verður skoðað hvernig fagleg samningamennska tengist leiðtogamennsku. Með fyrirlestrum, umræðum, æfingum og fleiri hagnýtum aðferðum munu nemendur afla sér þekkingar og færni í þessum þáttum samningatækninnar.  Meginmarkmið námskeiðsins er að það sé hagnýtt og því þarf að fara vel í fyrrnefnda þætti, sem þýðir meðal annars að skoðaðir verða þættir eins og virk hlustun og þáttur skapandi nálgunar í ákvarðanatöku.

 

Nánari upplýsingar og skráning

 







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica