Öll opin námskeið
Alþjóðlegt starfsumhverfi
Expat's and Repatriation
Hér er farið í mikilvægi þess að íslensk fyrirtæki kunni af fagmennsku að undirbúa sína starfsmenn til starfa á erlendri grundu. Í þessu ferli felst gríðarlegur kostnaður, en jafnframt tækifæri og því skiptir miklu að vel sé að málum staðið. Valferlið, undirbúningur, utanumhald, fræðsla og stuðningur við viðkomandi starfsmann og fjölskyldu þar sem við á. Ekki síður horft til atriða sem skipta starfslega máli á hinum nýja starfsvettvangi og leiðir til að útrýma óvissuþáttum varðandi heimkomu að verkefni loknu.
Hér er þörf á metnaðarfullri og öflugri mannauðsstýringu þar sem stutt er við árangursríkt ferli „expat“ starfsmanns. Að starfsmaður finni að þessi ákvörðun styðji við aukin starfstækifæri innan fyrirtækis þegar heim er snúið.
Nánari upplýsingar og skráning
Nánari upplýsingar og skráning

