Öll opin námskeið
Mannauðsstjórnun
Námskeiðið er hægt að taka samhliða vinnu.
Fjallað er um stefnumiðaða mannauðsstjórnun, breytingar á vinnumarkaði, áhrif þess á stjórnun starfsmannamála. Farið er í ferli mannauðsstjórnunar frá ráðningu til starfsloka. Áhersla er lögð á tengsl mannauðsstjórnunar við stefnumótun fyrirtækja og stofnana, rétta verkaskiptingu almennra stjórnenda og starfsmannadeilda og mælingar á árangri. Verklegar æfingar og lausn raundæma er ætlað að þjálfa ýmiss atriði námsins.
Meðal efnistaka er breytingastjórnun, alþjóðleg mannauðsstjórnun, stefnumiðuð mannauðsstjórnun, starfsmannastefna, hlutverk mannauðsdeilda og stjórnenda, ráðningarferlið, móttaka nýliða, frammistöðumat og starfsánægja.
Nánari upplýsingar og skráning hér.

