Öll opin námskeið

« okt 2010 »
SMÞMFFL
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Öll opin námskeið

12.10.2010 Stjórnmennt

Lærdómur mannauðsmála af hruninu og viðskiptasiðferði

Mannauðsáherslur til aukinnar viðskiptavildar og orðspors

Ásta Bjarnadóttir fer yfir hvernig ákjósanlegast er að stefnumiðuð mannauðsstefna („Strategic HRM“) styðji við rétta stefnu fyrirtækja, og stuðli að samfélagslega ábyrgum rekstri um leið og markmiðum fyrirtækis eða stofnunar er náð. Fjallað verður um hvernig stefnumiðuð mannauðsstjórnun átti hlut að máli við hrun stóru bankanna á Íslandi haustið 2008 og hvað megi læra af þeim atburðum fyrir mannauðsstjórnun til framtíðar.
Stefán Einar fjallar um þau siðferðilegu álitamál sem mæta mannauðsstjórum í störfum þeirra. Þar mun hann m.a. taka til umfjöllunar áhugaverð sjónarmið úr Rannsóknarnefndar Alþingis og setja siðfræðilegar vangaveltur í samhengi við þau sjónarmið sem sett voru fram í upphafi fyrirlestrar. Hann mun einnig fjalla um líkan dr. Roberts Audi sem ætlað er til þess að auðvelda starfsfólki að komast að siðferðilega bestri niðurstöðu um ákvarðanir sem taka þarf í rekstri.

Nánari upplýsingar og skráning



 







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica