Öll opin námskeið
Starfsmannasamtöl, launaviðtöl og samningatækni
Aukið sjálfstraust og styrkar undirstöður í samtals- og viðtalstækni
Hér er lögð áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðna þætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við það mikilvæga ferli að þekkja og undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl. Í mörgum fyrirtækjum er launakostnaður einn af stærstu útgjaldaliðum fyrirtækisins og því skiptir miklu máli að vel sé haldið á málum. Að sama skapi eru launaviðtöl áskorun sem margir stjórnendur mundu gjarnan vilja vera án. Tilgangur og ávinningur af starfsmannasamtölum verður ræddur út frá ýmsum sjónarhornum s.s. stjórnanda, starfsmanns og yfirstjórnar.
Nánari upplýsingar og skráning
Nánari upplýsingar og skráning

