Háskólinn í Reykjavík

Opni háskólinn stofnaður til að þjóna enn betur íslensku atvinnulífi

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu. Það er framlag okkar til samfélagsins sem við erum þátttakendur í. Samkeppnishæfni einstaklinga, fyrirtækja og þjóða á 21. öldinni ræðst af hæfni þeirra til að nýta þekkingu til framfara og þátttöku í alþjóðasamfélaginu.  

Við sköpum og miðlum þekkingu með það að leiðarljósi að auka samkeppnishæfni nemenda okkar og samstarfsaðila. Við leggjum jafnframt kapp á að auka okkar eigin samkepnisfærni með stöðugri þekkingarleit og starfsþróun. Við stöðnum ekki og horfum ávallt fram á við. Við hikum ekki við að fara ótroðnar slóðir og við leitum stöðugt nýrra leiða til að auka færni okkar, tryggja alþjóðleg gæði rannsókna og kennslu og bæta þannig framlag okkar til samfélagsins. Til að ná tilætluðum árangri þarf sérhvert okkar að berjast til að ná afburðaárangri. Afburðaárangur næst ekki nema með framúrskarandi ástundun og færni. Við vinnum óháð landamærum og höfum kjark til að brjóta hömlur sem við og aðrir setjum okkur.

Í tilefni tíu ára afmælis Háskólans í Reykjavík haustið 2009 var Opni háskólinn stofnaður til að þjóna enn betur íslensku atvinnulífi með þekkingu HR.  Nánar um Háskólann í Reykjavík hér.

Murray Briant   Spjall Nemar








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica