Gjafakort Opna háskólans

Gefðu gjöf sem auðgar!

Gjafakort OHGjafakort Opna háskólans veitir þér og þínum aðgang að öllum námskeiðum Opna háskólans og opnar þér heim tækifæranna. Gjafakortin eru tilvalin fyrir vini, vandamenn, starfsmenn, lykilviðskiptavini og þig! 

Gefðu gjöf sem auðgar – gefðu þekkingu í þágu þjóðar!

 

Hvernig kaupi ég gjafakort Opna háskólans?

Þú getur nálgast gjafakort Opna háskólans með nokkrum leiðum:

  1. Sótt okkur heim í Ofanleiti 2, 3ju hæð og keypt kortið hjá starfsfólki Opna háskólans.
  2. Hringt og pantað kortið og við sendum það til þín eða þess sem fær kortið með ábyrgðarpósti.  Reikningur vegna gjafakortsins verður sendur beint til þín.  Þóknun vegna ábyrgðarpósts er 620 kr.  Afhendingartími gjafakorta í ábyrgðarpósti er 1-3 virkir dagar.
  3. Skráð þig hér og pantað beint.  Reikningur vegna gjafakortsins verður sendur beint til þín.  Þóknun vegna ábyrgðarpósts er 620 kr.  Afhendingartími gjafakorta í ábyrgðarpósti er 1-3 virkir dagar.

 

Hvað kostar gjafakort Opna háskólans?

 Þú ákveður upphæð gjafakortsins.  Lágmarksupphæð er 10.000 kr.  Innistæðu kortsins er ekki hægt að leysa út fyrir reiðufé.

 

Hvernig getur sá sem þiggur gjafakortið nýtt inneignina?

 Nota má inneign kortsins á öll námskeið Opna háskólans.  Tilgreina þarf við skráningu að umsækjandi ætli að nýta kortið vegna námskeiðsins.  Yfirlit yfir næstu námskeið Opna háskólans er að finna hér.

  

Af hverju gjafakort Opna háskólans?

Gefðu gjöf sem auðgar – gefðu þekkingu í þágu þjóðar! 

Fjöldi styttri og lengri námskeiða er í boði auk diplómanáms og námskeiða sem metin eru til eininga á háskólastigi.   Gjafakortið er fallega hannað, gildir til eins árs og á námskeið / viðburð að eigin vali.  Það er einfalt mál að kaupa gjafkort á vefnum! 

 

Hvernig panta ég gjafakort Opna háskólans fyrir marga?

Gjafakort Opna háskólans er tilvalin gjöf fyrir hóp starfsfólks.  Pantanir sem eru stærri en 15 kort, verða afgreiddar í gegnum netfangið bryndisb@ru.is.

 

Hvar fæ ég nánari upplýsingar?

 Nánari upplýsingar um kortið eru veittar hjá starfsfólki Opna háskólans. 

  

  • Bryndís Bjarnadóttir bryndisb@ru.is og í síma 599-6387.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica