Forsíðufréttir
Skil á viðskiptaáætlunum vonum framar
Frumkvöðlakeppni fyrir konur í samstarfi við Íslandsbanka og FKA
Þann 16. janúar sl. voru skil á viðskiptaáætlunum í Frumkvöðlakeppni fyrir konur. Opni háskólinn í HR, Íslandsbanki og FKA standa að þessu framtaki. Í nóvember stóðu yfir námskeið í gerð viðskiptaáætlana í Opna háskólanum í HR og skráðu 34 konur sig til leiks með 30 áætlanir. Fjöldi skila var vonum framar og á næstu vikum mun matsnefnd fara yfir áætlanirnar. Í febrúar verða 5 þær bestu valdar og munu í kjölfarið fá frekari leiðsögn frá þeim bestu í faginu. Að lokum verður sú besta valin og fær að launum 2.000.000 kr. styrk frá Íslandsbanka til að koma hugmyndinni í framkvæmd.

