Forsíðufréttir

Þriðja lota PMD stjórnendanáms HR

Árangur í rekstri og verðmætasköpun

13.1.2012

 

PMD stjórnendanám HR hefur skapað sér ríkan sess í námskeiðsframboði Opna háskólans.  Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla faglega þekkingu stjórnenda og auka færni, frammistöðu og frumkvæði þeirra í dagsins önn.  Þriðja lotan af fimm er að hefjast í vikunni og snýr hún að árangri í rekstri og verðmætasköpun.  Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og stundakennari við HR leiðir lotuna og fær til liðs við sig valinkunna gestafyrirlesara.

 

Sjá nánar um uppbyggingu PMD námsins hér: http://www.opnihaskolinn.is/stjornmennt/pmd-stjornendanam-hr/pmd-uppbygging








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica