Forsíðufréttir

Ný stutt námskeið StjórnMenntar vel sótt

Áhættustýring - starfsánægja - gæðastjórnun - samræðulist

19.1.2012

 

Stjórnmennt býður upp á fjölda nýrra námskeiða á vorönn.  Sem dæmi má nefna námskeið um áhættustýringu  en námskeiðið nær til fræðilegs og verklegs hluta áhættustýringar.  Horft er til notkunar fyrirtækja á áhættustýringu til að stjórna og mæla áhættu, hvort sem um er að ræða markaðsáhættu, útlánaáhættu eða vaxtaáhættu.

Meðal umfjöllunarefna eru: Hvað er áhætta, hvernig skiptast einstaklingar í áhættuflokka og hver eru „rétt“ viðbrögð við áhættu.  Námskeiðið var haldið dagana 12. og 17. janúar sl. og komust færri að en vildu. 

Starfsánægja og liðsheild er dæmi um annað nýtt námskeið hjá Stjórmennt.  Á námskeiðinu er skoðað hvernig hægt er að stuðla að sterkri liðsheild í atvinnulífinu með aðferðum íþróttasálfræðinnar. Leitast verður svara við eftirfarandi spurningum: Hvað eiga íþróttalið og starfshópar sameiginlegt? Hvað er liðsheild? Hvað einkennir þau lið sem ná árangri og hvernig er hægt að nýta sér þá þekkingu.

Námskeið Gæðastjórnun er jafnramt  nýtt af nálinni hjá Stjórnmennt  þar sem farið verður yfir kröfur ISO 9001:2008 staðalsins sem felur m.a. í sér hugtakið um gæði í fyrirtækinu, gæðahringinn, verkferla, flæðirit, gæðaeftirlit. 

Námskeiðið Samræðulist miðar markvisst að því að auka færni þátttakenda í að beita sér á fundum, í ræðu og á riti — með sérstakri áherslu stjórnun og leiðtogahæfni.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica