Forsíðufréttir

Mikil aðsókn að námsbraut i markþjálfun

Morgunblaðið 4. janúar

4.1.2012

 

Stjórnendur Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík fara af stað í febrúar með heildrænt og hagnýtt nám í markþjálfun (Executive Coaching) á háskólastigi, þar sem grunnurinn er lagður að alþjóðlegri ACC vottun nemenda. Markþjálfun byggist á árangursdrifinni viðtalstækni til að auka sjálfsskilning og ábyrgð einstaklinga með upplýsandi spurningum, öflugum samtölum, sjálfsmati og æfingum.

Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR og markþjálfi, segir námið einkum vera ætlað þeim sem hafi áhuga á að starfa við markþjálfun á sGuðrún Högnadóttirviði atvinnulífsins.

„Markþjálfun má beita á ýmsa vegu, bæði tengt vinnu og einkalífi, en hún miðar sérstaklega að því að bæta árangur einstaklinga og skipulagsheilda. Við leggjum áherslu á að nám í markþjálfun gefi fólki tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína, laða fram það besta í starfsfólki, teymum og skipulagsheildum og bæta árangur í lífi og starfi,“ segir Guðrún.

Uppbyggilegur vettvangur

Markþjálfun er uppbyggilegur vettvangur til að þess að læra að þekkja og nýta betur eigin styrkleika og tækifæri. Í þjálfuninni er stuðst við markvissa viðtalstækni í því skyni að auka sjálfsskilning og ábyrgð einstaklinga með vekjandi spurningum, viðtölum, prófum og æfingum.

Leiðbeinandi markþjálfunar í Opna háskólanum er með gríðarmikla reynslu á sviði leiðtogafræða og markþjálfunar og hefur starfað fyrir mörg stærstu fyrirtæki í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þeir sem ljúka námi í markþjálfun hjá Opna háskólanum munu hafa öðlast næga þekkingu og þjálfun til að ljúka ACC prófi á vegum ICF (International Coaching Federation) og hafa traustan grunn til að starfa sjálfstætt sem markþjálfi. Námsbrautin er kennd í samstarfi við viðskiptadeild HR og CCUI.

Nánar hér:  http://www.opnihaskolinn.is/fagmennt/namsbrautir/markthjalfun/








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica