Vottun fjármálaráðgjafa
Í ljósi efnahagslegra sviptinga síðustu missera, alþjóðlegra staðla og viðmiða, og krafna almennings um trúverðugleika og öryggi í fjármálum er brýnt að faglegar kröfur til þeirra sem vinna að fjármálaráðgjöf verði endurskoðaðar. Þetta á jafnt við um lágmarksviðmið um hæfni, reynslu og þekkingu þeirra sem starfa að fjármálaráðgjöf. Með hliðsjón af því trausti sem almenningur og fyrirtæki verða að geta haft til fjármálastofnana er lykilatriði að þar starfi fólk sem hlotið hefur yfirgripsmikla þjálfun og þekkingu við hlutlausa og faglega ráðgjöf á sviði fjármála einstaklinga (Personal Finance). Því hefur farið af stað nám sem er sniðið sérstaklega að þjónusturáðgjöfum sem starfa í bönkum. Markmiðið með náminu er að þjónusturáðgjafi fái vottun sem fjármálaráðgjafi.
Markmið vottunar
Markmið vottunar er að samræma þær kröfur sem gerðar eru til
starfsmanna sem sinna fjármálaráðgjöf til einstaklinga innan aðildarfélaga SFF. Vottunin tekur til tveggja meginstoða sem eru fagþekking og samskipta- og ráðgjafafærni. Til að fá vottun þurfa starfsmenn fyrst að standast próf í fagþekkingarhluta vottunar til að fá tækifæri til að gangast undir mat á verklegri færni innan síns fjármálafyrirtækis sem staðfestir samskipta- og ráðgjafafærni viðkomandi.
Hlutverk Opna háskólans
Opni háskólinn við Háskólann í Reykjavík vill leggja sitt af mörkum til að stuðla að ofantöldu í nánu samstarfi við Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtök fjármálafyrirtækja. Við viljum vera virkur samstarfsaðili sem aðstoðar við þróun, undirbúning og framkvæmd þessa náms sem verið er að leggja grunninn að. Opni háskólinn mun hýsa ofangreint nám og leggja fram verkefnastjóra sem hefur umsjón með umgjörð námsins.
Samningur Opna háskólans við Samtök fjármálafyrirtækja um hýsingu námsins var undirritaður þann 14. desember 2011. Guðrún Högnadóttir framkvæmdarstjóri Opna háskólans og Guðjón Rúnarsson framkvæmdarstjóri Samtaka fjármálafyrirtækja undirrituðu samninginn.

