Forsíðufréttir

Brautskráning frumgreinamenntar

14.1.2012

 

Háskólinn í Reykjavík brautskráði  29 nemendur með frumgreinapróf laugardaginn 14. janúar s.l. . Brautskráningin fór fram í Antares í húsakynnum Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.

Við athöfnina flutti Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans ávarp. Af hálfu útskriftarnema talaði Þórunn Daðadóttir og af hálfu eldri nemenda Aðalsteinn Símonarson véltæknifræðingur og forstöðumaður framleiðslusviðs hjá Límtré Vírnet. Arna Margrét Jónsdóttir söng nokkur lög við undirleik .

Við brautskráninguna hlaut Ólafur Georg Gylfason viðurkenningu Samtaka iðnaðarins fyrir bestan árangur í frumgreinanámi. Ólafur fékk jafnframt viðurkenningar frá  Þýska sendiráðinu og Danska sendiráðinu fyrir ágætan árangur í þýsku og dönsku. Þórunn Daðadóttir fékk líka viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku frá Danska sendiráðinu. Eftir að nemendur höfðu fengið skírteini sín talaði rektor Háskólans í Reykjavík dr. Ari Kristinn Jónsson.Frumgreinar








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica