Forsíðufréttir

Frumgreinanemendur í þýskunám og starfsþjálfun erlendis

30.12.2011

 

Árið 2011 fékkst styrkur frá Leonardo áætluninni, sem er ein af  menntaáætlunum Evrópusambandsins, til að dvelja í Vín  í Austurríki í sex vikur. Nemendur fara strax að loknum prófum í maí. Fyrstu tvær vikurnar leggja nemendur stund á þýsku og farið verður í menningarferðir. Síðan tekur við fjögurra vikna starfsþjálfun hjá fyrirtæki í Vín.  

Það er stofnunin ActiLingua Academy  í Vín sem sér um skipulagningu í Austurríki. Þessi stofnun er með mikla reynslu á þessu sviði og hefur oft tekið þátt í Leonardo-verkefnum. Ýmis konar starfsþjálfun stendur nemendum til boða og má þar m.a. nefna störf í tækni- og tölvugeira, ferðamennsku og vistvænum fyrirtækjum.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica