Lært af kollegum við Oxford, Cambridge og LBS
Fimm starfsmenn Opna háskólans í HR hlutu styrk frá Erasmus háskólaáætluninni og Leonardo starfsmenntaáætluninni til að kynnast starfi háskóla í Bretlandi, og sóttu heim kollega sína í desember sl.
Tilgangur ferðarinnar var að kynnast „best practice“ á sviði símenntunar og stjórnendaþjálfunar (continuous professional education and executive education) og rýna sameiginleg sóknarfæri og áskoranir. Hópurinn hlaut einstakar viðtökur í University of Cambridge, University of Oxford, Cass Business School í London City og London Business School. Um var að ræða verðmætt tækifæri fyrir starfsfólk til að afla sér reynslu og þekkingu á sínu fagsviði og nýta í áframhaldandi sókn Opna háskólans í HR.

