Forsíðufréttir

Frá viðskiptahugmynd að veruleika

Mikil þátttaka kvenna á námskeiði í gerð viðskiptaáætlana

11.11.2011

Viðskiptaáætlanir35 konur stunda nú nám í gerð viðskiptaáætlana hjá Opna háskólanum í HR sem Íslandsbanki og FKA standa að. Viðskiptaáætlanirnar eru metnar af matsnefnd í lok námskeiðs og 5 bestu viðskiptaáætlanirnar komast áfram í vinnustofu.  Að lokum verður besta áætlunin valin og fær hún 2.000.000 í styrk frá Íslandsbanka.

Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka

„Það er mikilvægt að virkja kraft kvenna í atvinnulífinu og vill Íslandsbanki leggja sitt af mörkum í þeim efnum. Íslandsbanki var einn aðal bakhjarl verkefnisins Auður í krafti kvenna. Úr frumkvöðlanámskeiðum sem haldin voru þá komu frábærar hugmyndir. Að lokum höfðu þátttakendur stofnað yfir 50 fyrirtæki sem veittu yfir 200 ný störf. Nú viljum við endurtaka leikinn og virkja frumkvöðlakraftinn sem býr í okkur öllum.“

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica