Útflutningur þekkingar
Útflutningur þekkingar
Opni háskólinn í HR tók á móti rúmlega eitthundrað erlendum nemendum í síðustu viku sem sóttu námskeið fyrir fagfólk háskóla. Markmið námskeiðanna var að auka þekkingu þátttakenda og styrkja starfshæfni þeirra á sviði kennslu- og vísindastarfs háskóla.
Boðið var upp á eftirfarandi námskeið:
· University Didactics (Kennslufræði á háskólastigi)
· The Methodology of Writing Scientific Papers (Aðferðafræði við ritun vísindalegra greina)
· The International Office: From Good to Great (Alþjóðaskrifstofan – framúrskarandi þjónusta)
· The International University (Alþjóðlegi háskólinn)
Þátttakendur á námskeiðunum voru fræðimenn og stjórnendur háskóla í Póllandi, Lettlandi, Slóveníu, Slóvakíu, Rúmeníu og Eistlandi. Námskeiðin stóðu yfir 20 kennslustundir en auk þess sóttu þátttakendur menningar- og skoðunarferðir um Ísland.
Hvatt var til umræðu og gagnrýninnar hugsunar um aðferðafræði við mótun námskeiða og námsefnis og vönduð vinnubrögð við ritun vísindagreina. Starfsfólk Háskólans í Reykjavík bar ábyrgð á kennslu og fékk til liðs við sig gestakennara.
Það var samróma álit þátttakenda að gríðarlega vel hafi tekist til, námskeiðin hafi verið fræðandi og faglega sett fram og áhugaverðar skoðunar og menningarferðir í boði.

