Forsíðufréttir

Námsbraut í markþjálfun í fullum gangi

26.5.2010

Dagana 25. – 27. maí stendur yfir seinni staðarlota í námsbraut í markþjálfun (executive coaching). Öflugur hópur nemenda með víðtæka menntun og starfsreynslu á sviði viðskipta, mannauðsmála, leiðtogafræða og sálfræði, er saman kominn í húsakynnum Háskólans í Reykjavík við Ofanleiti undir leiðsögn Cheryl Smith, MCC (Master Certified Coach). Cheryl býr yfir rúmlega 25 ára reynslu í leiðtogaþjálfun fyrir stórfyrirtæki og hinar ýmsu ríkisstofnanir Bandaríkjanna. Hún hefur starfað sem markþjálfi og leiðbeinandi í fjöldamörg ár á vegum CCU þar sem hún er nú aðstoðarforstjóri.

Námsbraut í markþjálfun miðar að því að leggja grunn að alþjóðlegri ACC vottun nemenda (Associate Certified Coach). Er þetta í fyrsta skipti hér á landi sem markþjálfun er í boði á háskólastigi.

Námið gefur þátttakendum tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína, laða fram það besta í starfsfólki, teymum og skipulagsheildum og bæta árangur í lífi og starfi.

Námsbrautin er kennd í samstarfi við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR og CCUI.

 

Markþjálfun 3Markþjálfun 1

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica