Forsíðufréttir
Útskrift námsbrauta Opna háskólans
Fimmtudaginn 20. maí útskrifaði Opni háskólinn 19 nemendur af þremur námsbrautum. Fimm nemendur útskrifuðust af námsbraut í Ferðamálum og þjónustu, fimm af námsbraut í Stjórnun og rekstri og níu af námsbraut í markaðssamskiptum og almannatengslum.
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans útskrifaði nemendur.
Þrír nemendur, einn af hverri braut, voru verðlaunaðir fyrir góðan námsárangur, Þórlaug Sæmundsdóttir, Heiðar Örn Arnarson og Tómas Rólant Hansson.


