image6

Um Opna háskólann í HR

Auðlind einstaklinga.  Auðlind atvinnulífsins.

Markmið Opna háskólans er að virkja þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði þín með faglegu og hagnýtu námi. Opni háskólinn þjónar atvinnulífinu með fjölbreyttu framboði öflugra námsleiða undir leiðsögn innlendra og erlendra sérfræðinga. 

Rúmlega 500 námskeið eru á námskrá Opna háskólans og um 280 leiðbeinendur koma að kennslu bæði fræðimenn HR og kennarar erlendra samstarfsháskóla auk sérfræðinga úr íslensku atvinnulífi.  

Einingar Opna háskólans vinna með mörgum stærstu fyrirtækjum landsins, útskrifa fjölda nemenda af styttri námsbrautum, og brúa bil inn í háskólanám í elstu frumgreinadeild landsins. Að auki vinnur Opni háskólinn með fjölda virtra háskóla og fræðasetra s.s. MIT, IESE, FranklinCovey og fleiri.

 

  • Opni háskólinn auðgar íslenskt samfélag með miðlun og virkjun þekkingar utan hefðbundinna námslína á háskólastigi.
  • Opni háskólinn er vettvangur visku og vaxtar fyrir einstaklinga, faghópa og fyrirtæki;  hann er öllum opinn og opnar þér dyr að nýjum tækifærum. 
  • Opni háskólinn þjónar atvinnulífinu með fjölbreyttu framboði af fremstu innlendri og erlendri þekkingu hverju sinni og nýtir áhrifamiklar kennsluaðferðir með árangursríkum hætti.

 

6 þekkingargáttir Opna háskólans í HR:

FagMennt:  Hagnýt námskeið til að auka færni og fagþekkingu
StjórnMennt:  Áhrifaríkar leiðir til að efla rekstur, efla stjórnendur og starfsfólk
FrumgreinaMennt:  Sértæk námskeið til að brúa bilið inn í háskólanám
FrumkvöðlaMennt: Viðskiptasmiðja fyrir frumkvöðla
GrunnMennt:  Námskeið fyrir bráðger og námsfús börn
FjarMennt:  Áhrifarík námskeið í fjarnámi - á þínum tíma á þínum forsendum

Umsagnir nemenda

Ragnhildur-Vigfusdottir

"Opni háskólinn í HR er einn af uppáhaldsstöðunum mínum og ég vildi verja miklu meiri tíma þar. Sú fræðsla sem ég hef sótt þangað hefur verið góð; fróðleg, fagleg og skemmtileg. Ekki er verra hvað það er þægilegt að eiga samskipti við starfsmenn Opna Háskólans sem vilja allt fyrir mann gera og eru óþrjótandi að koma með góðar og gagnlegar tillögur um fræðslu fyrir starfsmenn jafnt sem stjórnendur."

- Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun

 

Sjá meira


Opnaðu dyr tækifæranna

Forsíðufréttir

20.08.2010 : Ný sóknarfæri á haustönn

Við kynnum fjölbreytt námsfraboð Opna háskólans í HR á haustönn.  Styrktu stöðu þína og virkjaðu ný sóknarfæri með því að taka þátt í nýjum námsbrautum, lengri námskeiðum og styttri opnum hámskeiðum.  Nánar hér.

Nánar
 

18.08.2010 : Gull í mund

 

29.06.2010 : Til fyrirmyndar!

 

19.04.2010 : Útskrift tryggingaskólans

Föstudaginn 16. apríl útskrifuðust 24 nemendur úr tryggingaskólanum. Vátryggingarnám HR er í samvinnu við tryggingafélögin. Námið er í 3 hlutum og alls 135 klst.

utskrift

Nánar
 

08.04.2010 : Aukinn fjöldi sækir í frumgreinanám HR

Nú þegar hafa margir sótt um frumgreinanám á haustönn 2010 og eru umsóknir um 30% fleiri en á sama tíma í fyrra. Nemendur bera frumgreinanámi HR  mjög vel söguna en þetta nám stendur á gömlum merg og er löngu búið að sanna sig sem góður undirbúningur fyrir háskólanám. Reynt verður að svara umsóknum fljótt og vel en til þess að hægt sé að afgreiða umsókn þurfa tilskilin fylgigögn, þ.e. staðfest afrit af námsferli og starfsvottorð,  að berast skólanum og er best að senda þau til HR - Frumgreinanám, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík.  Einnig er hægt að koma með fylgigögn í afgreiðsluna á 5. hæð í Ofanleiti.  Nánar hér.

Nánar
 

17.12.2009 : Stjórnendur fjárfesta í menntun til framtíðar þrátt fyrir kreppu

 

Samkvæmt samantekt Stjórnmenntar Opna háskólans lítur út fyrir að íslenskir stjórnendur og sérfræðingar hafi lagt áherslu á að efla færni og þekkingu starfsmanna sinn og sjálfrar sín á síðastliðnu ári þrátt fyrir kreppu. 

Nánar
 

10.09.2009 : Reikningsskiladagur FLE 2009

Reiknisskiladagur FLE 2009 fer fram þann 18. september n.k.  Yfirskrift ráðstefnunnar er "Fjármálakreppan á Íslandi - brást umgjörð reikningsskila? 

Nánar
 

01.09.2009 : Mikil áhugi á námskeiði fyrir stjórnarmenn lífeyrissjóða

Námskeiðið "Ábyrgð og árangur stjórnarmanna lífeyrissjóða"  er sérsniðið að lífeyrissjóðunum og er haldið í samstarfi við ASÍ og viðurkennt af FME. Mikill áhugi er fyrir þessu námskeiði og er það senn að verða fullbókað.  Upplýsingar um námið má finna hér

Nánar
 

20.08.2009 : Staðarlota fjarnámsnemenda á 2. önn frumgreinanáms

Staðarlota fer fram dagana 21. - 23. ágúst í stofu 227 að Höfðabakka 9  Dagskráin hefst með móttöku nema kl. 8:30.

Nánar
 

15.08.2009 : Fyrirtæki í Viðskiptasmiðjunni hljóta verðlaun

Þrjú fyrirtæki voru sérstaklega verðlaunuð fyrir góðan árangur í Viðskiptasmiðjunni – Hraðbraut nýrra fyrirtækja á lokahófi sumarannar Viðskiptasmiðjunnar 23. júlí síðastliðinn. Nánar
 

14.08.2009 : Mikil þátttaka á námskeiðum um jákvæða sálfræði

Frábær þátttaka var á námskeið úm jákvæða sálfræði sem Opni háskólinn í HR hélt í samstarfi við Kennslu- og lýðheilsudeild og Lýðheilsustofnun. Námskeiðið var ha

Nánar
 

13.08.2009 : Mikill áhugi á námskeiði fyrir stjórnarmenn fyrirtækja og stofnana

Mikill áhugi á námskeiði fyrir stjórnarmenn fyrirtækja og stofnana

Nánar
 

13.08.2009 : Nýjungar í dipómanámi

Fjölbreytt úrval nýrra diplómanámsleiða á haustönn Nánar
 

13.08.2009 : Opið fyrir skráningar í námskeið á haustönn 2009

Skráning á námskeið Fagmenntar í fullum gangi. Úrval öflugra námskeiða í lengra og styttra námi - til háskólaeininga eða beinnar hagnýtingar bíða þín.

Yfirlit yfir námsframboð

Nánar
 

13.08.2009 : Diplómanám í markaðssamskiptum og almannatengslum

Diplómanám í markaðssamskiptum og almannatengslum

Nánar
 

07.08.2009 : Mikil fjölgun í nám við FrumgreinaMennt

Stöðug aukning er í frumgreinanám Háskólans í Reykjavík sem byggir á rúmlega 40 ára gamalli hefð Nánar
 

05.08.2009 : Fishing management

Fishing management - stjórnun í sjávarútvegi kynnt erlendum þátttakendum

Nánar
 

01.08.2009 : Fjölgun erlendra nemenda í Opna háskólanum í HR

Nemendur frá Úganda og Kína sækja námskeið Opna háskólans í HR

Nánar
 

03.07.2009 : Samstarfssamningur Opna háskólans og Skipta

Samstarfssamningur Opna háskólans og Skipta undirritaður á sviði MIT Industry Liason Program

Nánar
 

25.06.2009 : Þekkingarbrunnur stjórnenda kynntur

Þekkingarbrunnur stjórnenda kynntur

Nánar
 

23.06.2009 : Nýjar þekkingarlausnir Opna háskólans

Útdráttur fyrir nýja frétt.

Nánar
 

24.04.2009 : Uppskera opna háskólans vorönn 2009

Útdráttur fyrir frétt 2

Nánar
 

18.04.2009 : MIKIL AÐSÓKN Í OPNA HÁSKÓLANN Í HR

Pellentesque tempor risus quis velit.

Nánar
 

Fréttasafn









  • Opni Háskólinn í HR-
    Þekking í þína þágu og þjóðar!

    Kraftmikil uppspretta þekkingar og tækifæra.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica