Forsíðufréttir

Nýtt tákn þekkingar og tækifæra

Kraftmikil uppspretta skýrrar hugsunar, sköpunargáfu og innsæis

9.2.2010

logo_isMerki Opna Háskólans byggir á merki Háskólans í Reykjavík og á því rætur í aðalbyggingu skólans við Nauthólsvík. Merkið undirstrikar sköpun og miðlun þekkingar og þá kraftmiklu uppsprettu þekkingar og tækifæra sem Opni háskólinn er.

Grunnform merkisins er hringur. Hringur hefur hvorki upphaf né endi og er tákn einingar, heildar, óendanleika og alheims. Einingar merkisins sem mynda hringformið snertast, skarast og mynda hreyfingu eða flæði. Einingarnar eru ólíkar að stærð, lögun og lit, en saman mynda þær mikilvæga heild. Merkið er opið og einingarnar vísa frá miðju – beina flæði fólks og þekkingar frá kjarnanum, eins og geislar og vísa þar með til miðlunar hugmynda og þekkingar.

Merkið er blágrænt eða túrkis að lit.  Túrkís ýtir undir skýra hugsun, sköpunargáfu og innsæi. Liturinn stendur auk þess m.a. fyrir:  Kærleika, lækningu, gjafmildi, tilfinningar, líðan, ábyrgð einstaklingsins, miðlun og sjálfstæði.

Hönnunarstaðal fyrir Opna háskólann er að finna hér.

Nánari upplýsingar um merki Háskólans í Reykjavík er að finna hér.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica