Auðlind einstaklinga. Auðlind atvinnulífsins.
Markmið Opna háskólans er að virkja þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði þín með faglegu og hagnýtu námi. Opni háskólinn þjónar atvinnulífinu með fjölbreyttu framboði öflugra námsleiða undir leiðsögn innlendra og erlendra sérfræðinga.
Rúmlega 500 námskeið eru á námskrá Opna háskólans og um 280 leiðbeinendur koma að kennslu – bæði fræðimenn HR og kennarar erlendra samstarfsháskóla auk sérfræðinga úr íslensku atvinnulífi.
Opni háskólinn vinnur með mörgum stærstu fyrirtækjum landsins, útskrifar fjölda nemenda af styttri námsbrautum og brúar bil inn í háskólanám í elstu frumgreinadeild landsins. Að auki vinnur Opni háskólinn með fjölda virtra háskóla og fræðasetra s.s. MIT, IESE, FranklinCovey og fleiri.

