Samkeppnishæfni og lífsgæði
StjórnMennt – Opna Háskólans í HR hefur í uppundir áratug í nafni Stjórnendaskólans og StjórnMenntar virkjað þekkingu stjórnenda og starfsmanna til að efla samkeppnishæfni fyrirtækja og auka lífsgæði starfsfólks. Skólinn vinnur náið með flestum fremstu fyrirtækjum og stofnunum landsins með því að sérsniða lausnir að þörfum og starfsumhverfi viðkomandi viðskiptavinar.
Þekkingargátt
Skólinn er gátt fyrir íslenskt atvinnulíf að fremstu leiðbeinendum og sérfræðingum heims í gegnum samstarf hans við virta erlenda háskóla og fræðasetra eins og MIT, IESE, Franklin Covey sem og íslenska sérfræðinga í gegnum samstarf við Capacent á sviði stjórnendaþjálfunar og – fræðslu. Framsækin þjálfun og menntun stjórnenda, sérfræðinga og starfsfólks fyrirtækja gerir þeim kleift að skara fram úr í samkeppni og vera skapandi á tímum breytinga.
Náið samstarf til árangurs
Hlutverk StjórnMenntar Opna háskólans í HR er að starfa náið með fyrirtækjum og stofnunum við að efla stjórnunar – og leiðtogahæfni, halda og bæta við fagþekkingu og veita stuðning við stefnumótun og innleiðingu breytinga í rekstri. Í StjórnMennt vinnum við í víðtæku samstarfi við mörg af öflugustu fyrirtækjum landisins. Lausnir StjórnMenntar eru sérsniðnar að þörfum og aðstæðum viðskiptavina okkar, hvort sem unnið er að afmörkuðum þætti í leiðtogaþjálfun eða í umfangsmiklu samstarfi sem snertir alla starfsemi fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
Velgengni þín er velgengni okkar
StjórnMennt skilgreinir árangur með hliðsjón af velgengni þeirra fyrirtækja og stofnana sem starfa með skólanum. Frábær árangur viðskiptavina og jákvæðar viðtökur í íslensku atvinnulífi eru okkur hvatning til að þróa þjónustu skólans áfram á sömu braut með áherslu á víðtækt samstarf við fyrirtæki og stofnanir, sérsniðnar lausnir, færustu sérfræðinga og fagleg vinnubrögð. Við erum stolt af því ða koma við sögu í árangursríku starfi viðskiptavina okkar og erum þess fullviss að StjórnMennt haldi áfram að byggja brú á milli fræðilegrar þekkingar og árangursríkrar hagnýtingar hennar í íslensku atvinnulífi.

