Þekkingarsetur
Sérsniðnar þekkingarlotur fyrir starfsmannahópa
Markmið þekkingarsetra og sérsniðna námskeiðslota fyrir vinnustaði er að efla faglega þekkingu starfsmanna og stuðla að aukinni færni þeirra í starfi. Þekkingarsetrin eru sett saman eftir greiningu þjálfunarþarfa viðkomandi hóps og byggja á námskeiðaröð sem sækir efnistök til háskólasamfélagsins og vinnustaðarins. Allt eftir þörfum hópsins.
Efnistök
Þekkingarsetrin eru ólík eftir áherslum fyrirtækja og stofnana en efnistök eru sótt inn í deildir Háskólans í Reykjavík, sem og til samstarfsaðila eins og Franklin Covey, Matís og fleiri innlendra og erlenda samstarfsaðila.
Efnistökin eru meðal sótt inn á eftirfarandi svið:
- Viðskiptafræði
-
- Stjórnun, forysta, stefnumótun, fjármál og rekstur, hagfræði, mannauðsstjórnun, samningatækni, verkefnastjórnun, gæðastjórnun, áhættustjórnun, sölu, þjónustu og markaðsmál osfrv.
- Lögfræði
- Verk- og tæknifræði
- Tölvunarfræði
- Kennslu- og lýðheilsufræði
- Sálfræði
- Félagsvísinda og tungumál
-
- Íslenska, enska, spænska, framkoma og tjáning, siðfræði, gagnrýnin hugsun, menning osfrv. +
Dæmi um þekkingarsetur
Eftirfarandi eru dæmi um þekkingarsetur sem StjórnMennt hefur haldið í samstarfi við íslensk fyrirtæki og stofnanir á þessu ári:
- Leiðtogasetur
- Fjármálaráðgjafasetur
- Viðskiptastjórasetur
- Þekkingarsetur um stjórnun ogrekstur
- Mannauðssetur
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar:
Sími: 599 6200
Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is

