Sterkari liðsheild - Stígum skrefin saman!

Stígum skrefin saman

Hópefli Opna háskólans með Practical

Styrking liðsheildarinnar er megin áhersla margra stjórnenda í dag. Skref_Rautt_Page_2

Liðsheildir gegna mikilvægum þætti í árangri fyrirtækja og því leita stjórnendur að leiðum til að auka framleiðni,  til að ná krefjandi markmiðum, auka sköpun og þróa árangursríka vinnustaðamenningu.

Því er þörf á að leita leiða til að efla liðsheildir, og með því að sameina krafta okkar í öflugu samstarfi!

Eflum árangur einstaklinga og liðsheilda

Samstarf Opna háskólans og Practical gerir okkur kleift að þróa einstaka þjálfunaraðferð sem flýtir fyrir námi, hjálpar til við vinnslu lausna og eflir árangur einstaklinga og liðsheilda. Aðferðin endurspeglar þá trú okkar að við lærum best í gegnum reynslu, þ.e. með því að framkvæma og upplifa.

Námskeiðin eru kröftug um leið og þau tryggja öryggi og stuðning sem hjálpar þátttakendum að taka virkan þátt í náminu og því breytingaferli sem þar á sér stað. Námskeiðin sameina  annars vegar hefðbundna þjálfun  sem gefur tækifæri til djúprar umfjöllunum, greiningar og innsýnar og hins vegar samvinnuþrautir og krefjandi æfingar þar sem þátttakendur vinna að lausnum sem reyna á margvíslega hæfileika og kunnáttu þátttakenda. Frammistaða þátttakenda er rýnd og upplifunin yfirfærð yfir á vinnuaðstæður viðkomandi hóps.

 

P2 P7Vefur_C

 Nú er rétti tíminn til að hefja uppbyggingu og stíga saman skrefin til framtíðar. 

Practical er þekkt fyrir að leggja mikla áherslu og metnað í framúrskarandi þjónustu og persónuleg samskipti við viðskiptavini Skref_Rautt_Page_1sína. Þarna eru áherslur algjörlega í takt við Opna háskólann.

Practical sérhannar viðburði sína og hópefli til samræmis við óskir viðskiptavina líkt og opni háskólinn sérsníðir námskeið sín og fræðslu að áherslum sinna viðskiptavina.

Því eru viðburðir Opna háskólans og Practical óhefðbundnir, skemmtilegir, fræðandi, skapandi og ógleymanlegir.

 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Guðmunda Smáradóttir

netfang: gudmundas@ru.is

sími: 599-6378

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica