...allt frá undirbúningi og fundarstjórn til einstaktra dagskráliða
Góð liðsheild er mikilvægur hluti af starfsumhverfinu. Góð liðsheild stuðlar m.a. að jákvæðum samskiptum, nánu samstarfi og árangursríkri ákvörðunartöku. Góð liðsheild dregur fram það besta í hverjum hóp.
Í boði er annars vegar umfjöllun um framkvæmd, mikilvægi og kenningalegan bakgrunn hópeflis og hins vegar fjölbreytt úrval liðsheildarnámskeið í samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila.
StjórnMennt býður faglega þjónustu vegna undirbúnings starfsdaga, hópeflis og viðburða vinnustaða. Við höfum sérfræðinga á okkar snærum sem eru sérfræðingar á sviði undirbúnings, verkstjórnar og framkvæmdar funda, starfsdaga og viðburða sem og fundarstjórnun og fyrirlestra.
Smelltu hér til að senda inn fyrirspurn varðandi starfsdag, fundarstjórnun eða hópefli
Undirbúningur og framkvæmd starfsdaga og viðburða
Stjórnmennt tekur að sér undirbúning, verkstjórn og framkvæmd funda, starfsdaga og viðburða á vegum fyrirtækja, stofnana og félaga. Starfsfólk okkar hefur víðtæka reynslu á þessu sviði.
Fundarstjórnun
Sérfræðingar á vegum Stjórnmenntar taka að sér fundarstjórnun á mikilvægum fundum innan fyrirtækja, stofnana og félaga. Um er að ræða faglega lóðsun (e. facilitation) á íslensku, ensku, spænsku og dönsku.
Námskeið um liðsheildina
Samvinna, vilji og samkennd eru mikilvægir hlekkir í liðheildinni. Hægt er að styrkja þessi hlekki með markvissri þjálfun þar sem er blandað saman fræðslu, lykil-leikjum og þrautum. Þátttakendur læra af þeirri reynslu sem þeir öðlast (Experiential Learning) og taka hana síðan með sér og reyna að heimfæra á lausn verkefna og aðstæður á vinnustað.
Með þjálfuninni má bæta samskipti starfsmanna og sýna fram á mikilvægi þess að þættir eins og samvinna, gleði, traust og virðing auka árangur heildarinnar og byggja upp getu og þor.
Mat á virkni liðsheildarinnar með TMS
TMS matstækið (Team Management Survey) gefur þátttakendum tækifæri til að meta með heildrænum hætti eigin styrkleika og veikleika sem leiðtogar og greina mismunandi hlutverk þeirra innan hópa. TMS hefur verið notað um allan heim í opinberum og einkarekstri og reynst sérlega vel við
íslenskar aðstæður. Nánari upplýsingar um TMS er að finna hér.
Dagskráliðir á starfsdaga og viðburði
Í boði eru margvíslegir dagskráliðir á starfsdaga, mikilvæga fundi og aðra viðburði, má þar nefna:
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar:
Sími: 599 6200
Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is

