Sérsniðnar lausnir

Sérsniðnar lausnir

 

Murray BriantOpni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík hefur í uppundir áratug virkjað þekkingu stjórnenda og starfsmanna til að efla samkeppnishæfni  fyrirtækja og auka lífsgæði starfsfólks. Skólinn vinnur náið með flestum fremstu fyrirtækjum og stofnunum landsins með því að sérsniða lausnir að þörfum og starfsumhverfi viðkomandi viðskiptavinar.

 

 

 

 Gátt fyrir íslensk atvinnulíf

Skólinn er gátt fyrir íslenskt atvinnulíf að fremstu leiðbeinendum og sérfræðingum heims í gegnum samstarf hans við virta erlenda háskóla og fræðasetra eins og MIT, IESE, Franklin Covey sem og íslenska sérfræðinga í gegnum samstarf við Capacent á sviði stjórnendaþjálfunar og – fræðslu.  

Leiðtogaauður VinnufundurFramsækin þjálfun og menntun stjórnenda, sérfræðinga og starfsfólks fyrirtækja gerir þeim kleift að skara fram úr í samkeppni og vera skapandi á tímum breytinga.  

Hlutverk Opna háskólans í HR er að starfa náið með fyrirtækjum og stofnunum við að efla stjórnuanar – og leiðtogahæfni, halda og bæta við fagþekkingu og veita stuðning við stefnumótun og innleiðingu breytinga í rekstri. Við vinnum í víðtæku samstarfi við mörg af öflugustu fyrirtækjum landisins. Lausnir Opna háskólans í HR eru sérsniðnar að þörfum og aðstæðum viðskiptavina okkar, hvort sem unnið er að afmörkuðum þætti í leiðtogaþjálfun eða í umfangsmiklu samstarfi sem snertir alla starfsemi fyrirtækisins eða stofnunarinnar.

Efnistök

Sérsniðnar lausnir eru ólíkar eftir áherslum fyrirtækja  en efnistök eru sótt inn í deildir Háskólans, til sérfræðifyrirtækja og erlenda samstarfsaðila. Efnistökin geta t.d. spannað helstu svið viðskiptafræða (stefnumótun, fjármál, forystu, stjórnun, o.fl.) auk sértækra áherslusviða sérfræðinga á margvíslegum fagsviðum (t.d. samningatækni, verkefnastjórnun, ákvörðunartaka, áhættustjórnun, afleiður o.fl.) eða verk- og tæknifræða, lögfræða eða kennslu- og lýðheilsufræða osfrv.

 

Greining á fræðsluþörfum

Við mótun sérsniðinnar lausnar er í upphafi framkvæmd greining á fræðsluþörfum fyrirtækisins.  Í samræmi við niðurstöður Spjallgreiningarinnar er sett saman dagskrá fyrir fræðslu og þjálfun sem að styður við framtíðarstefnu fyrirtækisins.  Eftir að þjálfun er lokið fer fram mat á árangri þjálfunarinnar. Með þessu ferli tryggjum við hámarksárangur þjálfunar sem skilar sér í bættum rekstri fyrirtækisins.

  • Við leggjum okkur fram við að greina þarfir fyrirtækisins og skilja starfsemi þess.
  • Við bjóðum sérsniðnar lausnir sem tryggja þínu fyrirtæki að fjárfesting í fræðslu skilar sér í bættum rekstri.

 Möguleikarnir eru óþrjótandi en innihald þjálfunar og fræðslu í sérsniðinni lausn er engum takmörkunum háð. Hvert sem markmiðið er, þá er StjórnMennt Opna háskólans með lausnina að leiðinni til árangurs.

 

 

OH í SólinniNánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar: 

Sími: 599 6200

Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is

 

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica