TMS

Sterkari liðsheild með TMS!

Við gerum okkur grein fyrir getu einstaklinga, krafti liðsheildarinnar og ræktum mátt hópsins.Liðsheild
Þegar við fáum að njóta okkar í lífi og starfi, erum virk, virt og vinnum að skilgreindu takmarki eru markmið og árangur heildarinnar innan seilingar!

Háskólinn í Reykjavík hefur um árabil stuðst við greiningartæki Team Management System (TMS) við greiningu stjórnendahópa. TMS gefur þátttakendum tækifæri til að meta með heildrænum hætti eigin styrkleika og veikleika sem leiðtogar og greina mismunandi hlutverk þeirra innan hópa. TMS hefur verið notað um allan heim í opinberum og einkarekstri og reynst sérlega vel við íslenskar aðstæður.

Markmið

Með því að svara rafrænum spurningalista, sem tekur um hálftíma, gefst verðmæt svipmynd af leiðtogaeiginleikum viðkomandi m.a. út frá persónulegri hæfni, viðhorfum, samvinnu og samskiptum. Hver stjórnandi fær sjálfsmatsskýrslu TMS sem gefur m.a. innsýn inn í hvernig stjórnendur:

  • Kjósa að eiga samskipti við fólk
  • Afla og nota upplýsingar
  • Taka ákvarðanir
  • Skipuleggja sig og aðra

Niðurstöður úr TMS gefa einstaklingum vísbendingu um hvernig sé best að miðla upplýsingum til annarra, hvernig er best að sannfæra þá og vekja áhuga og eldmóð. Annar mikilvægur kostur TMS er að það veitir starfsmönnum og stjórnendum hlutlaus hugtök til að ræða hvernig og hversvegna það nálgast vinnu á mismundi hátt.

Áhrif

TMS Prófið hefur markvisst verið notað til að tryggja betri árangur þegar þjappa þarf saman hópi í gegnum breytingar. Það er gert með því að fara yfir þá þætti sem þarf að huga að í breytingaferli og skilja hvernig ólíkir einstaklingar og hópar taka á breytingum. Farið verður í hvernig undirbúa á breytingarnar og mikilvægi þess að starfsmenn skilji breytingarnar og samþykki þær. Oft og tíðum sjá ekki allir sömu tækifærin í breytingum, því er mikilvægt fyrir stjórnendur að skilja starfsmenn og hvernig einstaklingar nálgast hlutina á ólíkan hátt til að tryggja árangursríkar breytingar. Einkenni árangursríkra liða eru rædd og á hvaða hátt stjórnandinn getur sinnt því mikilvæga hlutverki að skapa liðsheild sem stendur sig vel við mismunandi aðstæður.

 

Nánar

TMS lógóNánari upplýsingar um TMS sjálfsmatið og vinnudag stjórnenda er að finna hér og hjálögðu kynningarriti TMS.

 

Nánari upplýsingar um TMS veitir starfsfólk StjórnMenntar í síma 599-6200 eða stjornmennt@opnihaskolinn.is  


 

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica