Reykjavíkur Akademían

Samstarf um fræðslu á sviði hug- og félagsvísinda

Sameiginlegt markmið samningsaðila er að skapa og miðla þekkingu til stjórnenda og starfsfólks í íslensku atvinnulífi og annarra með því annars vegar að þróa styttri og lengri námskeið og námslínur sem eru seldar í gegnum Opna háskólann. Og hins vegar að fræðimenn RA fái nýjan vettvang í gegnum námskeið og námslínur OH til að miðla sérþekkingu sinni til íslenskt atvinnulífs.

 

Reykjavíkur Akademían (RA) er aðsetur sjálfstætt starfandi fræðimanna í hug- og félagsvísindum. Reykjavíkur Akademían heldur ráðstefnur, skipuleggur fyrirlestra og kynningar á rannsóknum félaga. Fræðimenn RA stunda ýmiskonar rannsóknir á íslensku samfélagi og menningu, ritstörf auk kennslu á háskólastigi.

Heimasíða Reykjavíkur Akademíunnar

 

Dæmi um námskeið og erindi:

 

 Borgríkisþróun suðvesturhornsins: munu 80% landsmanna búa í Faxaborg árið 2015?

Um 2/3 hlutar landsmanna búa nú á hinum eiginlega höfuðborgarsvæði, en ef svæðið um eða innan klukkustundar aksturstíma frá Reykjavík er athugað búa nú þegar á því sævði 75% landsmanna og sú tala verður að öllum líkindum orðin 80% innan nokkurra ára. Þýðir þetta að „gamla“ byggðastefnan sé úrelt? Hvernig gæti „ný“ byggðastefna litið út? Er það kannski frekar borgarstefna?

Fyrirlesari: Jón Rúnar Sveinsson (Phil.Lic),  fræðimaður hjá Reykjavíkur Akademíunni.

 

Er eitthvað á minnið að treysta?

Hvernig fara þjóðir að því að muna? Rætt verður um þróun minnisins og hversu líklegir einstaklingar og hópar hafa verið til þess að taka minningar sem góðar og gildar. Hvernig munum við fyrri tíð; einstaklingar, hópar og samfélagið í heild?

Fyrirlesari:  Sigurður Gylfi Magnússon (Ph.D), fræðimaður hjá Reykjavíkur Akademíunni.

 

Er eitthvað á Evrópusambandinu að græða?

Í gegnum EES-samninginn og Schengen-landamærasamstarfið er Ísland virkur þátttakandi í samstarfi Evrópuríkja. Samstarfið er ekki síst mikilvægt á sviði atvinnu- og efnahagslífs. Aukin umsvið íslenskra fyrirtækja á evrópskum mörkuðum verður til þess að mikilvægt er fyrir fólk í íslensku atvinnulífi að þekkja til Evrópusamstarfsins. Í fyrirlestrinum eru helstu þættir í starfsemi Evrópusambandsins greindir og tengsl Íslands við Evrópusambandið skýrt út á einfaldan og aðgengilegan máta. Hver er munurinn á EES og ESB? Mun vöruverð lækka við aðild að ESB? Fyllast fiskimiðin að spænskum togurum? Mun Ísland hafa einhver áhrif innan stofnana ESB? Er aðildargjaldið ekki rándýrt? Er eitthvað á ESB að græða?

Fyrirlesari: Eiríkur Bergmann Einarsson, fræðimaður hjá Reykjavíkur Akademínunni.

 

Framtíðarsmiðja

Framtíðarsmiðja er aðferð sem þýski félagsfræðingurinn Robert Jungk mótaði á 6. Áratugnum. Hann leitaði að aðferð til að auka virkni almennings í ákvörðunartöku, aðferð sem nýtir bæði skynsemi og tilfinningar til að þróa nýjar hugmyndir. Síðan hefur aðferðin þróast og aðlagast ólíkum aðstæðum og hefur náð mikilli útbreiðslu, ekki síst í Þýskalandi, Bretlandi og Skandinavíu. Framtíðarsmiðja er aðferð fyrir hópa til að koma af stað breytingum í málum sem þeim finnst aðkallandi. Aðferðin vekur hugmyndir og eflir framsýni innan hópsins og gerir þátttakendur meðvitaða um möguleika sína til að hafa áhrif. Árangur góðrar smiðju er sameiginlegur byrjunarreitur fyrir framkvæmdir og leiðir venjulega fljótt til athafna sem er í samræmi við framtíðarsýn sme þátttakendur hafa komið sér saman um.

Fyrirlesari: Björg Árnadóttir (M.Ed), fræðimaður hjá Reykjavíkur Akademíunni.

 

Greinaskrif

Fyrirlestur með þátttöku nemenda um hvernig hægt er að koma skoðun sinni á framfæri í rituðu máli. Hvernig nær maður tökumá og afmarkar það sem maður vill segja, hvenig eru blaðagreinar byggðar upp, hvað eru málsnið og markhópur, hvernig eru samskipti við fjölmiðla um birtingu greina?

Fyrirlesari: Björg Árnadóttir (M.Ed), fræðimaður hjá Reykjavíkur Akademíunni.

 

Skapandi skrif

Fyrirlestur með þátttöku nemenda um ritunarferlið. Hvers vegna langar okkur að skrifa, hvað er erfitt við að skrifa, hvernig fær maður hugmyndir, hvernig nær maður tökum á hugmyndum og kemur þeim á blað, hvað eru ferliskrif, hvernig getur námskeið í ritun hjálpað við að byrja að skrifa?

Fyrirlesari: Björg Árnadóttir (M.Ed), fræðimaður hjá Reykjavíkur Akademíunni.

 

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica