Matís

Miðlun þekkingar til starfsfólks matvælaiðnaðarins

 

Jákvæð sálfræði

 Sameiginlegt markmið samningsaðila er að skapa og miðla þekkingu til starfsfólks matvælaiðnaðarins með því annars vegar að þróa styttri og lengri námskeið og námslínur sem eru seldar í gegnum Opna háskólann. Og hins vegar að starfsfólk Matís fái vettvang í gegnum námskeið og námslína OH til að miðla sérþekkingu sinni til íslenskt atvinnulífs.

Matís ohf er öflugt þekkingarfyrirtæki sem sinnir fjölbreyttu rannsókna- þjónustu- og nýsköpunarstarfi í matvælaiðnaði. Hjá Matís starfa margir af helstu sérfræðingum landsins í matvælatækni og líftækni; matvælafræðingar, efnafræðingar, líffræðingar, verkfræðingar og sjávarútvegsfræðingar. Hjá Matís starfa nú um 100 manns og þar af eru 11 í mastersnámi og 10 í doktorsnámi.

Heimasíða Matís

  

Nám fyrir stjórnendur í matvælaiðnaði

 

Rekstarstjórnun og vöruþróun í matvælaframleiðslu

 Markmið námsins er að efla almenna rekstrarkunnáttu nemenda og kynna þeim hagnýtar og sannreyndar aðferðir og vinnubrögð sem ýta undir rekstrarlegan árangur m.a. með betri stjórnun virðiskeðjunnar og markvissari samningum við birgja. Auk þess verður fjallað um vöruþróun og nýsköpun frá hráefni til neytenda.  Farið verður yfir það hvar og hvernig má koma auga á tækifæri, hvernig tækifæri er flutt af hugmyndastiginu á þróunarstigið, stjórnun nýrrar þróunar, og loks hvernig nýrri þróun er komið á framfæri í formi nýs vöru- eða þjónustuframboðs.

 

 

 

 

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica