Stefnan í framkvæmd með xQ - The Execution Quotient
Stefnan í framkvæmd með xQ - The Execution Quotient
Opni háskólinn í HR vinnur í samstarfi við FranklinCovey með mörgum fremstu fyrirtækjum landsins að gera framtíðarsýn að veruleika. Með xQ matstækinu fáum við innsýn í hvernig má skapa og varðveita virði með því að snúa orðum í athafnir.
- xQ (“The Execution Quotient”) er matstæki sem mælir stöðu á innleiðingu stefnu fyrirtækja og mælir getu einstaklinga, liða og fyrirtækis til að hrinda í framkvæmd markmiðum.
- xQ hefur verið notuð víða um heim í fjölda ára, á 32 tungumálum, og hafa rúmlega 250.000 manns tekið þátt.
- Um er að ræða rafræna könnun með 27 spurningum. Einnig er möguleiki að sérsníða allt að 10 aukaspurningar fyrir fyrirtæki í könnuninni.
- Svör eru ekki rekjanleg til einstakra starfsmanna og þau má flokka eftir stjórnunarlögum, sviðum, starfssvæðum o.fl. bakgrunnsbreytum.
- Það tekur um 15 mínútur að svara könnuninni – þú getur tekið sýnishorn af könnuninni hér: xQ demo
Samkvæmt xQ líkaninu má brúa gjánna milli stefnu og framkvæmdar með því að huga að þáttum sem varða annarsvegar fókus starfsfólks og hinsvegar samstarf þess.
Fókus byggir á fjórum þáttum: 1) skýrleika (e. clarity), 2) helgun (e. commitment), 3) yfirfærslu (e. translation) og 4) aga (e. discipline). Samvirkni má auka með að gera fólki mögulegt að nýta hæfileika sýna (e. enabling), með samvinnu (e. colloboration) og trausti (e. trust) og því að halda fólki ábyrgu fyrir árangri (e. accountability).
Hér er að finna svipmynd af því hvernig má skapa virði með því að meta stöðu á innleiðingu stefnu Frjáls Verslun xQ.
- Nánari upplýsingar um virði og sóknarfæri með XQ – The Execution Quotient
- Kynningarrit um xQ mattækið – xQ Survey and Report – strategic management tool
- Rannsókn Harris Interactive um bandarískan vinnumarkað og tryggð við stefnu fyrirtækja með xQ – nánar hér
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk StjórnMenntar:
Sími: 599 6200
Netfang: stjornmennt@opnihaskolinn.is

