Eitt fremsta námsefni heims til persónulegrar forystu og árangurs
Árangursríkir einstaklingar skapa árangursrík fyrirtæki
Opni háskólinn í HR er með einkaumboð fyrir lausnum FranklinCovey á Íslandi. Um er að ræða ítarlega og einstaklingsmiðaða nálgun við að rækta einstaklinga og liðsheildir og laða fram það besta í hverjum og einum. Heildrænt kerfi 7 Venja til árangurs hjálpar einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að ná hámarks árangri í lífi og starfi og byggir á mest seldu stjórnunarbók allra tíma: 7 Habits of Highly Effective People, eftir Stephen Covey. Nánari upplýsingar um bókina má finna hér.
Markmið ferilsins
- Persónuleg starfsþróun – kynntar eru aðferðir til að efla frumkvæði, skipuleggja sig, vinna að markmiðum og stefnu og virkja liðsheildina til árangurs.
- Leiðtogaþróun — 7 Venjur til Árangurs efla hæfileika verðandi og vaxandi leiðtoga með því að skerpa framtíðarsýn, forgangsraða verkefnum, skilja betur eigin hlutverk og ná fram samlegðaráhrifum hópsins.
- Efla hæfni í að takast á við breytingar — Það hefur sýnt sig að nálgun Covey á mjög vel við þar sem tekist er á við erfiðar eða umfangsmiklar breytingar og þar sem byggja á á traustum grunni gilda og framtíðarsýnar.
Hvaða valkostir?
Nánari upplýsingar um lengd, innihald og nálgun vinnustofa er að finna hér.
Ítarlegar upplýsingar um 7 venjur á vef Franklin Covey, m.a. vinnubækur, myndbönd og matstæki hér.
Heildarlausn – ferli, ekki námskeið
7 Venjur til Árangurs er heildstæð lausn til að rækta fólk og fyrirtæki og byggir m.a. á eftirfarandi ferli:

Rafrænt 360° frammistöðumat (7 Habits Benchmark)
Mat allt að 12 umsagnaraðila á frammistöðu þátttakanda. Sú endurgjöf er leiðbeinandi um núverandi frammistöðu og setur viðmið fyrir áframhaldandi vöxt.
Vinnustofa (Development Workshop)
Þriggja daga vinnustofa sem einblínir á árangur á vinnustað og persónulegan árangur hvers og eins. Vinnustofan byggir á verklegum og skriflegum æfingum, sjálfsmati, fyrirlestrum, myndböndum og mjög fjölbreyttum og gagnvirkum kennsluaðferðum. Lögð er áhersla á árangur á vinnustað en þátttakendur tileinka sér aðferðir sem nýtast í senn í starfi, lífi og samfélagi okkar.
Tímastjórnunarkerfi PlanPlus (FranklinCovey Planning System )
Hugbúnaður sem vinnur með Microsoft Outlook eða á pappírsformi. Um er að ræða einstaklega skilvirkt og virt kerfi til persónulegrar áætlunargerðar.
Persónuleg heimasíða og sjö vikna samningur (Seven-Week 7 Habits Contract)
Hver þátttakandi vinnur áfram með hugmyndafræði Covey í kjölfar vinnustofu með sjö vikna samning sem gerir þátttakendum kleyft að meta eigin framvindu, miðla til annarra af eigin þekkingu, og nálgast ítarefni á rafrænu formi og/eða í prentuðum samningi.
Hvenær er næsta námskeið?
Vinnustofur í 7 venjur eru sérsniðnar að lokuðum hópum skv. tilboði. Næstu opnu námskeið er að finna hér
Hvaða 7 Venjur til árangurs?
Venja 1: Taktu af skarið
Be Proactive®
Venja 2: Í upphafi skal endirinn skoða
Begin with the End in Mind®
Venja 3: Kapp er best með forsjá
Put First Things First®
Venja 4: Vinnum saman
Think Win-Win®
Venja 5: ...eyrum hlýðir, en augum skoðar. Svo nýsist fróðra hver fyrir.
Seek First to Understand Then to be Understood®
Venja 6: Samvirkni til árangurs
Synergize®
Venja 7: Brýndu kutann
Sharpen the Saw®

