Coaching Clinic

Að laða fram það besta

The Coaching Clinic er tveggja daga þjálfun fyrir stjórnendur í hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar(coaching).CCU lógó

Coaching

Markþjálfun (executive coaching) miðar að því að hámarka getu og laða fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi. Um er að ræða skilvirka aðferð við stjórnun og dagleg samskipti sem eflir stjórnendur og starfsmenn í að nýta sem best faglega þekkingu sína og persónulegan styrk við úrlausn daglegra verkefna í vinnu.

Markmið

Markmið þjálfunarinnar eru fjögur:

  1. Að veita þátttakendum fræðilega innsýn í nýjungar og “best practices” á sviði leiðtogaþjálfunar.
  2. Að þjálfa lykilstarfsfólk í aðferðafræði markþjálfunar (coaching) og veita því tækifæri til beita nýrri færni við dagleg störf.
  3. Að virkja og varðveita frumkvæði starfsmanna og vinna að stöðugum umbótum með sannreyndum og áhrifaríkum aðferðum.
  4. Að þróa og styðja við frumkvöðlastarf á sviði internal coaching.

Coaching Clinic logoUm er að ræða tveggja daga námskeið frá Corporate Coach U (CCU) samkvæmt námskeiðslýsingu og dagskrá hér að neðan. Námskeiðið verður haldið í Háskólanum í Reykjavík fyrir takmarkaðan fjölda þátttakenda.

Coaching Clinic® er kennt af Guðrúnu Högnadóttur, sem er viðurkenndur þjálfari frá CCU (Licenced facilitator) og einkaráðgjafi (Associate Corporate Coach) og hefur starfað um árabil með íslenskum fyrirtækjum.

Um er að ræða mjög krefjandi þjálfun sem krefst mikillar þátttöku og athygli þátttakenda. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, verklegum æfingum, sjálfsmati, lausn verkefna og umræðum.

Innifalið í verði er undirbúningur, fyrirlestrar, hópstarf, kennsluefni og PDCA sjálfsmatskýrslur auk kennsluaðstöðu og veitinga.

Nánari lýsing á Coaching Clinic

Coaching clinic er sérsniðið að lokuðum hópum skv. tilboði.  Næstu opnu námskeið er að finna hér.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica