PMD Uppbygging

Kennslulotur Reykjavík

PMD2PMD Stjórnendanám HR er samtals 80 klst. og samanstendur af fimm lotum. Hver lota er kennd með fjögurra vikna millibili á fimmtudegi og föstudegi frá 9:00 – 17:00 auk verkefnavinnu. Námið er á meistarastigi (án ECTS) og byggist kennslan að miklu leyti á raunverkefnum (case studies).

  • Námið verður aftur í boði haustið 2011 og hefst þann 19. október 2011 og því lýkur 16. mars 2012.
  • Námið samanstendur af fimm námskeiðalotum og kennt er á fimmtudegi og föstudegi.

 

Lota 1: Árangur í stjórnun: forysta til framfara

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Þekki betur eigin styrkleika og tækifæri til áhrifa.
  • Skilji og yfirfæri rannsóknir um forystu í eigin starfi.
  • Hafi sett sér markmið um framfarir og unnið að áætlun um árangur.
  • Hafi styrkt eigin þekkingu á stjórnunar og náð betri yfirsýn yfir rekstur.
  • Hafi eflt eigin leiðtogahæfileika og hafi betri sýn á áskoranir og tækifæri í íslensku samfélagi. 

Leiðbeinandi: Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR.

Lota 2: Stefnumótun og stjórnun breytinga

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Hafi náð tökum á helstu hugtökum stefnumótunar.
  • Þekki til áhrifa mismunandi aðferða í stefnumörkun.
  • Geti beitt viðeigandi tækjum og tólum vegna greiningarvinnu.
  • Hafi spreytt sig á nokkrum af þeim aðferðum sem kynntar verða.
  • Kunni skil á helstu þáttum er varða skipulag og mannlega þætti breytingarstjórnunar
  • Geti sett saman áætlanir um helstu þætti breytinga og skilgreint krítíska þætti
  • Hafi fengið æfingu í því að takast á við krítíska árangursþætti

Leiðbeinendur: Þröstur Olaf Sigurjónsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Dr. Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar við HR  

Lota 3: Árangur í rekstri

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Hafi almennan skilning á ársreikningum og hvernig einstakir þættir þeirra tengjast verðmætasköpun fyrirtækja
  • Hafi náð tökum á helstu hugtökum fjármála, einkum það sem lýtur að verðmati.
  • Geti beitt helstu aðferðum verðmats og skoðað niðurstöður á gagnrýninn hátt.

Leiðbeinandi: Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags Atvinnurekenda og stundakennari við HR.

Lota 4: Árangur á markaði

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Geti greint tækifæri og ógnanir á markaði.
  • Séu neytendamiðaðir og þekki mikilvæg atriði í neytendasálfræði.
  • Skilji hlutverk markaðsrannsókna í rekstri fyrirtækja.
  • Hafi góða hugmynd um hvernig á að útbúa markaðsáætlun og geti fylgt henni eftir.
  • Þekki samþætt markaðssamskipti og helstu kennitölur markaðsfræðinnar.

Leiðbeinandi: Valdimar Sigurðsson, er Nova dósent í markaðsfræði og forstöðumaður rannsókna og doktorsnáms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Lota 5: Samningar og verkefnastjórnun

Samningatækni:

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur: 

  • Hafi skilning á undirliggjandi þáttum í samningaviðræðum og helstu hugtökum samningatækni
  • Auki hæfni sína til að leysa úr ágreiningi og snúa átökum í árangursríkt samstarf
  • Virki hæfileika sína til að ná hagstæðri niðurstöðu og skapa traust fyrir langtíma viðskiptasambönd
  • Njóti aukins sjálfstrausts í samningaviðræðum og geti nýtt þekkingu sína til að stjórna gangi viðræðna og beina þeim til hagstæðrar niðurstöðu

Leiðbeinandi: Aðalsteinn Leifsson er lektor í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

 

Verkefnastjórnun:

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur: 

  • Hafi þekkingu á skipulagsfræði verkefna innan fyrirtækis og kunni að skilgreina viðskiptafæri verkefna (business case) með arðsemisútreikningum, áhættumati, beinum og óbeinum ávinningi.
  • Þekki til undirbúnings og áætlanagerðar verkefna s.s. með afmörkun, gerð tölusettra markmiða og áfangaskiptingu verkefnis (WBS), critical path ofl.
  • Hafi þekkingu á tímavirði peninga. Kunni að reikna heildarkostnað verkefnis og greina hann niður á áfanga og verkstig.
  • Kunni skil á framvindueftirliti, áhættu og óvissu.

Leiðbeinandi: Þórður Víkingur Friðgeirsson, lektor við tækni- og verkfræðideild HR. 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica