PMD Uppbygging

Kennslulotur Reykjavík

PMD2PMD Stjórnendanám HR er samtals 96 klst. og samanstendur af sex lotum. Hver lota er kennd með fjögurra vikna millibili á fimmtudegi og föstudegi frá 9:00 – 17:00 auk verkefnavinnu. Námið er á meistarastigi (án ECTS) og byggist kennslan að miklu leyti á raunverkefnum (case studies).

  • Námið hefst þann 20. september 2012 og því lýkur 22. mars 2013.

 

 

Lota 1: Árangur í stjórnun: forysta til framfara

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Þekki betur eigin styrkleika og hafi áhrifaríka sýn yfir viðfangsefni á sviði stjórnunar og reksturs.
  • Hafi sett sér markmið um framfarir og unnið að áætlun um árangur.
  • Hafi eflt leiðtogahæfileika og hafi betri skilning á áskorunum og tækifærum til vaxtar.

Leiðbeinandi: Guðrún Högnadóttir, Managing Partner Franklin Covey.

Lota 2: Stefnumótun og stjórnun breytinga

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Hafi náð tökum á helstu hugtökum stefnumótunar.
  • Þekki til áhrifa mismunandi aðferða í stefnumörkun.
  • Geti beitt viðeigandi tækjum og tólum vegna greiningarvinnu.
  • Hafi spreytt sig á nokkrum af þeim aðferðum sem kynntar verða.
  • Kunni skil á helstu þáttum er varða skipulag og mannlega þætti breytingarstjórnunar.
  • Hafi yfirsýn yfir helstu þætti breytingaferlisins og geti skilgreint krítíska þætti.
  • Hafi fengið æfingu í því að takast á við helstu áskoranir breytingastjórnunar.

Leiðbeinendur: Þröstur Olaf Sigurjónsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Dr. Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar við HR

Lota 3: Stefnumiðuð mannauðsstjórnun

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Skilji hvernig nýta má tæki mannauðsstjórnunar til að styðja við almenna stefnumörkun og hafa áhrif á hegðun.
  • Þekki og geti beitt helstu aðferðum sem notaðar eru við ráðningarferlið og geti metið gæði þeirra og árangur.
  • Skilji tilgang frammistöðustjórnunar, þekki helstu nálganir við frammistöðumat og geti varast algengar hinkranir og villur.
  • Þekki leiðir til að bregðast við frammistöðuvanda starfsmanna, áfengis- og vímuefnanotkun eða brota í starfi.
  • Kunni skil á tengslum milli fjarvista og álags, starfsánægju og framleiðni og þekki leiðir til að minnka fjarvistir.
  • Geti sett saman áætlanir um meðferð mála við áföll í fyrirtækinu og alvarleg áföll í einkalífi starfsmanna.

Leiðbeinendur: Arney Einarsdóttir, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Inga Björg Hjaltadóttir, eigandi Attentus.

Lota 4: Rekstur og verðmætasköpun

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Hafi almennan skilning á ársreikningum og hvernig einstakir þættir þeirra tengjast verðmætasköpun fyrirtækja
  • Hafi náð tökum á helstu hugtökum fjármála, einkum þeim sem lúta að verðmati.
  • Geti beitt helstu aðferðum verðmats og skoðað niðurstöður á gagnrýninn hátt.
  • Hafi almenna og hagnýta þekkingu á helstu þáttum í stjórnun fjármála.

Leiðbeinandi: Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags Atvinnurekenda og stundakennari við HR.

Lota 5: Árangur á markaði

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Geti greint tækifæri og ógnanir á markaði.
  • Séu neytendamiðaðir og þekki mikilvæg atriði í neytendasálfræði.
  • Skilji hlutverk markaðsrannsókna í rekstri fyrirtækja.
  • Séu færir um að hanna markaðsáætlun og fylgja henni eftir.
  • Þekki samþætt markaðssamskipti og helstu kennitölur markaðsfræðinnar.

Leiðbeinandi: Valdimar Sigurðsson, er dósent í markaðsfræði og forstöðumaður rannsókna og doktorsnáms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Lota 6: Samningatækni og Verkefnastjórnun

Samningatækni:

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur: 

  • Skilji undirliggjandi þætti í samningaviðræðum og helstu hugtökum samningatækni.
  • Auki hæfni sína til að leysa úr ágreiningi og snúa átökum í árangursríkt samstarf.
  • Auki hæfileika sína til að ná hagstæðri niðurstöðu og skapa traust fyrir langtíma viðskiptasambönd
  • Njóti aukins sjálfstrausts í samningaviðræðum og geti nýtt þekkingu sína til að stjórna gangi viðræðna og beina þeim til hagstæðrar niðurstöðu.

Leiðbeinandi: Aðalsteinn Leifsson er lektor í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Verkefnastjórnun:

Í lok námslotunnar er stefnt að því að þátttakendur:

  • Hafi þekkingu á skipulagsfræði verkefna innan fyrirtækis og kunni  að skilgreina viðskiptatækifæri verkefna (business case) með arðsemisútreikningum, áhættumati, beinum og óbeinum ávinningi.
  • Þekki til nýjustu strauma í verkefnastjórnun s.s. stefnumarkandi verkefnastjórnunar og straumlínustjórnunar, Agile aðferða, áhættustjórnunar og straumlínustjórnunar verkefna (lean project management).
  • Þekki til verkefnisstjórnunarumhverfa s.s. PRINCE2 sem miða að því að verkefni séu rekin á hagkvæman hátt innan hefðbundinna skipuheilda.

Leiðbeinandi: Þórður Víkingur Friðgeirsson, lektor við tækni- og verkfræðideild HR.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica