Tilgangur fagráðs PMD Stjórnendanáms HR
Sérstakt fagráð, skipað sérfræðingum og stjórnendum HR, hefur yfirsýn um framgang námsins sem og nemenda námslínunnar og tryggir að gæði og fagleiki haldist í hendur við samskonar námslínur erlendra háskóla. Fagráð ber ábyrgð á gæðum námsins og fundar 3 -5 sinnum á námstíma. Hlutverk fagráðs er að:
a. rýna markmið og efni námsins.
b. staðfesta hæfni kennara sem valdir eru til kennslu.
c. hafa eftirlit með gæðum námsins á námstíma.
d. hafa eftirlit með að hæfnisviðmið séu vel skilgreind og uppfyllt.
e. taka þátt í markaðssetningu og kynningu námsins.
Fagráð PMD Stjórnendanáms HR
Fagráð PMD námsins skipa:
- Dr. Vlad Vaiman, forstöðumaður MSc náms og dósent í HR.
- Dr. Valdimar Sigurðsson, dósent við viðskiptadeild HR.
- Guðmunda Smáradóttir Msc, verkefnastjóri Opna háskólans í HR
Allar ábendingar varðandi PMD Stjórnendanám HR skulu berast á netfang: hebasoffia@ru.is og verður unnið úr öllum ábendingum á fagráðsfundum.

