PMD Stjórnendanám HR

Heildstæð og hagnýt námslína fyrir stjórnendur

PMD4Opni háskólinn í HR kynnir nýja námsbraut fyrir stjórnendur: Stjórnendanám HR – Program for Management Development (PMD).  Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla faglega þekkingu stjórnenda og auka færni, frammistöðu og frumkvæði þeirra í dagsins önn.    

Að náminu loknu hafa stjórnendur öðlast færni til aukins árangurs í hlutverki sínu. Námið er þannig uppsett að sú færni sem stjórnendur tileinka sér, nýtist strax í verkefnum fyrirtækisins. Þannig skilar fjárfestingin í náminu sér strax til baka fyrir fyrirtækið. 

 Þetta nám er sérlega hentugt fyrir þá stjórnendur sem vilja efla hæfni sína með öflugri námslínu, án þess að skuldbinda sig og sinn dýrmæta tíma til margra ára náms.

Stjórnendanám HR - Program for Management Development (PMD)  

Markmið PMD námsins er að styðja stjórnendur í að takast á við áskoranir á vinnustað, vakta breytingar og tækifæri í viðskiptalífinu, nýta sannreyndar og hagnýtar leiðir til að laða fram það besta með hliðsjón af nýrri tækni, tækifærum og þróun alþjóðasamfélagsins.

Lögð er áhersla á að þátttakendur séu ekki einungis að tileinka sér nýja þekkingu og færni á námskeiðunum sjálfum, heldur er skapað lærdómsumhverfi sem hvetur þátttakendur til að endurmeta og bæta stjórnunaraðferðir sínar á milli kennslulota.

Nokkrir helstu sérfræðingar og samstarfsaðilar Háskólans í Reykjavík leiða kennslu með stuðningi PMD fagráðs.  Námið er á meistarastigi og kennslan byggir að miklu leyti á raunverkefnum (case studies) og verkefnum tengdum vinnustað þátttakenda.

Fyrir hverja

Námið er ætlað stjórnendum með minnst 3 ára stjórnunareynslu og haldbæra menntun.  PMD Stjórnendanám HR er kjörinn vettvangur fyrir þá stjórnendur sem vilja bæta við menntun sína og hæfni samhliða vinnu, án þess að skuldbinda sig til langtímanáms.

Uppbygging PMD Stjórnendanáms HR

PMD Stjórnendanám HR er samtals 80 klst. og samanstendur af fimm lotum. Hver lota er kennd með fjögurra vikna millibili á fimmtudegi og föstudegi frá 9:00 – 17:00 auk verkefnavinnu. Námið er á meistarastigi (án ECTS) og byggist kennslan að miklu leyti á raunverkefnum (case studies).

  • Námið verður aftur í boði haustið 2011 og  hefst þann 19. október  2011 og því lýkur 16. mars 2012.
  • Námið samanstendur af fimm námskeiðalotum og kennt er á fimmtudegi og föstudegi.
  • Sjá nánari lýsingu á efnistökum.

 

SÆKJA UM HÉR

 

Nánari upplýsingar

Guðmunda Smáradóttir

Sími: 599 6378

Netfang: gudmundas@ru.is

 

 

Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.











Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica